Morgunn - 01.06.1981, Qupperneq 14
12
MORGUNN
fyrirbœri geti verið breytileg að gerð, og enn fremur, að
túlkun þess, sem skynjar, sé ekki ávallt hin sama. Ég ætla að
reyna að skýra, hvað ég á við, með nokkrum dæmum.
Lítum fyrst á frásögur guðspjallanna af því, sem gerðist
eftir skirn Jesú í ánni Jórdan. (Matt. 3, 16-17. Mark. 1, 10—
11. Lúk. 3, 21-22. Jóh. 1, 32). Allar þessar frásagnir eru hver
annarri frábrugðnar í einhverju. Markús segir, að .Tesús hafi
séð himnana eða himininn opnast. I’að er með öðrum orðum
sýn Jesú eins. Allir hinir gera ráð fyrir þeim atburði, að
himnarnir hafi opnast. Það er með öðrum orðum ekki aðeins
sýn. Bæði Matteus, Markús og Lúkas gera ráð fyrir því, að
.Tesús hafi séð dúfuna stíga niður, en taka ekkert fram um aðra,
sem viðstaddir kunna að hafa verið. En í Jóhannesarguðspjalli
segir Jóhannes skírari ákveðið, að hann sjálfur hafi „séð and-
ann stíga niður af himni eins og dúfu.“ Lúkas tekur fram, að
dúfan hafi verið í likamlegri mynd. t>að getur ekki annað
þýtt en það, að hér hafi ekki aðeins verið um að ræða dulsýn,
heldur efniskenndan fugl. Loks segja þeir Markús og Lúkas,
að guðsröddin hafi talað til Jesú, en Matteus, að hún hafi
talað til annarra viðstaddra. En í Jóhannesarguðspjalli talar
guðsröddin til skírarans, en ekki til Jesú.
Ég ætla ekki að ræða um það, hvaða ástæður liggja eða
geta legið til þess mismunar, sem við finnum í frásögum guð-
spjallsins. Ég vil aðeins vekja athygli á þvi að þeir sem segja
sögurnar, safna þeim saman og skrásetja, geta vel hugsað sér,
að sýnin sé opin sumum en ekki öllum viðstöddum, að dúfan
sé ekki nauðsynlega af einni gerð. Og fyrirbærið sé ekki hið
sama i túlkun allra.* Enn eitt atriði má nefna í þessu sam-
bandi. Markús segir, að andinn hafi komið inn í Jesú (eis).
Hann hefir í huga óefniskenndan kraft af hæðum. En bæði
Matteus og T.úkas forðast að komast svo að orði, heldur segja
þeir, að dúfan hafi komið yfir Jesú (epí). Þeir virðast vera
* Ósamræmið í lýsingunum sýnir, að )>eir sem söfnuðu helgustu ritum
kristninnar, voru ekki bókstafstrúarmenn.