Morgunn - 01.06.1981, Blaðsíða 23
FORVISKA. OG DULTRÚ SKÓLAFÓLKS
21
lausnir en búast hefði mátt við fyrir meðaltilviljun. Síðast-
nefnda frávikið frá meðaltilviljun nemur 2,32 stöðluðum frá-
vikum (z-gildum).
Nú vaknar sú spurning hvort líklegt sé að þessi munur á
úrslitum flokkanna stafi af tilviljunarsveiflum. Með chi-
kvaðrat prófi, sem tekur tillit til röðunar flokkanna (Armi-
tage 1971), birtist marktækur munur á fjölda réttra lausna
eftir trú þátttakenda á tilveru hinna dulrænu fyrirbæra
(x2 = 5,59, 1 frígráða, P = 0,02). Þetta er svipuð niður-
staða og áður hefur fengist í sambærilegum tilraunum og
staðfestir þá tilgátu, að jákvætt samband sé milli dulskynj-
unar og trúar á dulræn fyrirbæri.
Tilgangur tilraunar okkar var þó fyrst og fremst sá að
prófa nýja tilgátu. Er ekki samband milli lesturs bóka og
greina um dulræn efni og fjölda réttra lausna i forspártil-
raun? Hugsanlegt er að þeir, sem oft lesa um slík efni, geri
það vegna þess að þeir búi yfir meiri forspárgáfu en hinir,
sem sjaldnar lesa þess háttar bókmenntir.
Eins og sjá má í meðfylgjandi töflu reyndist verulegur mun-
ur á meðalfjölda réttra lausna í forspárprófinu eftir því hvort
þátttakendur lásu oft, sjaldan eða aldrei bækur eða greinar
um dulræn efni. Þeir 105, sem oft lásu um dulræn efni, fengu
að meðaltali 20,88 réttar lausnir eða 92 fleiri en fást ættu
fyrir meðaltilviljun (staðlað frávik 2,01, P = 0,02 einhliða).
Fjöldi réttra lausna hjá þeim 255, sem sjaldan lesa um dulræn
efni, nálgast mjög meðaltilviljun, 19,91. Þeir 89, sem aldrei
lesa um dulræn efni, víkja lengst frá meðaltilviljun. Meðal-
tal þeirra er 18,52 og réttar lausnir þeirra 132 fœrri en hefðu
átt að fást fyrir meðaltilviljun. Staðlað frávik (z) er — 3,50.
Likindi fyrir tilviljun eru hér aðeins 2 á móti 10 þúsundum.
Með áðurnefndu chi-kvaðrat prófi fæst á lausnum allra
þriggja hópanna x2 = 16,62, ein frígráða, P = 0,00005. Þessi
niðurstaða sýnir mjög marktækt samband milli fjölda réttu
lausnanna í forspárprófinu og lesturs bóka og greina um dul-
ræn efni. Fyrir tilviljun ætti þessi lausn aðeins að nást einu
sinni við tuttugu þúsund tilraunir.