Morgunn - 01.06.1981, Blaðsíða 24
22
MORGUNN
En hvað um samband dulskynjunar og tíðni munaðra
drauma og berdreymis? Tilgátur um slíkt samband prófuð-
um við einnig fyrir ári siðan (Haraldsson 1975). Marktækt
samband fannst fyrir hvoruga tilgátuna hvorki þá né nú.
Samantekt: Sé litið á frávik fjölda réttra lausna frá meðal-
tilviljun sem vísbendingu um forspárgáfu kemur eftirfarandi
í ljós:
1. Marktækur munur er á fjölda réttra lausna, þegar þátt-
takendur eru flokkaðir eftir trú sinni á tilveru hugskeyta
Og forspárgáfu. Mjög marktækur munur er á fjölda réttra
lausna séu þátttakendur flokkaðir eftir því hve oft þeir
lesa bækur og greinar um dulræn efni.
2. í heild virðast því þeir, sem trúa á og lesa oft um dulræn
efni, nota forspárgáfu sína til að fjölga réttum lausnum
í forspárprófi en „vantrúarmennirnir“ virðast nota sömu
gáfu til að fækka réttum lausnum.
3. Af einstökum hópum manna virðast „vantrúarmennirnir“
sýna mesta forspárgáfu en nota hana til að komast á
villigötur.
Niðurstödur jorspárprófs eftir viðhorfum skólafólks til
dulrænna fyrirbœra og lestri um dulræn efni.
Fjöldi svarenda Réttar lausnir á forspár- prófi Frávik réttra lausna frá meðal tilviljun Meðaltal réttra lausna Staðlað frávik (Z)
Telja tilveru hug- skeyta og forspár- hæfileika: a. Vissa 90 1841 + 41 20,46 + 1,08
b. Mögulega 331 6565 — 55 19,83 - 0,76
c. Óhugsanlega 28 511 - 49 18,25 - 2,32
Alls 449 8917 - 63 19,86 - 0,53