Morgunn - 01.06.1981, Page 29
AFSTAÐA . . .
27
því um líkt. Það er sem sagt ljóst, að tilfinningar og ósk-
hyggja, sem saman eða sitt í hvoru lagi eru oft undirstaða
blindrar trúar, ráða oft ferðinni. Menn geta t.d. verið ó móti
möguleikanum á framhaldslífi af einhverjum tilfinninga-
legum ástæðum eða borið i brjósti sér heita ósk urn að líf sé
að loknu þessu.
Af þessum ástæðum öllum er ljóst að sérstakrar aðgæslu
er þörf við athuganir á dulrænum fyrirbærum og að sönn-
unarskylda hvilir í raun þyngra ó dularsálfræðinni en öðrum
greinum. Og þótt undarlegt sé, hafa óréttlátustu gagnrýn-
endur þessarar ungu greinar orðið henni að miklu liði, því
gagnrýni þeirra hefur iðulega verið tekin til greina og hert
æ meira á rannsóknarskilyrðum.
Eins og minnst var á óðan, byggist svokölluð dulræn
reynsla að miklu leyti á persónulegri upplifun. Þetta veldur
þvi, að oft er erfitt að uppfylla ströngustu skilyrði um vís-
indaleg vinnubrögð, en þau kveða m. a. á um, að möguleiki
á endurtekningu tilrauna verði að vera fyrir hendi. Sem
dæmi um hve mikilvægur þessi möguleiki er talinn, má
nefna hugmyndir bandarískra sameindaliffræðinga. Þeir fást
við nútíma erfðafræði og byggjast rannsóknir þeirra að drjúg-
um hluta á athugunum á, hvernig ýmis einkenni erfast hjá
crverum, svo sem bakteríum. Við tilraunir sínar nota þeir
gjarna örverur með mjög sjaldgæf einkenni og því hafa þær
hugmyndir verið uppi meðal þeirra, að hver sá vísindamað-
ur, sem birtir afrakstur rannsókna sinna, skuli einnig vera
tilbúirin að sjá þeim sem hefði áhuga á að endurtaka tilraunir
hans, fyrir órverum þeim sem notaðar voru við rannsókn-
irnar. Það gefur auga leið, að oft er erfitt að uppfylla skil-
yrði þetta um möguleika á endurtekningu tilrauna, þegar
um dulræn fyrirbæri og upplifun jieirra er að ræða.
Hvernig gengur þá hinum virðulegri visindagreinum að
að uppfylla skilvrði þau, sem sett eru um visindaleg vinnu-
brögð? Þótt skömm sé frá að segja, er þar viða pottur brot-
inn. Nægir þar að nefna hugmyndir um uppruna alheims-
ins og uppruna lífs á jörðu, sem stjarnfræðingar og líffræð-