Morgunn


Morgunn - 01.06.1981, Side 31

Morgunn - 01.06.1981, Side 31
AFSTAÐA . . . 29 deild Orkustofnunar, frá 21. júní 1977: „Á dögunum fékk hann (Gunnar Thoroddsen) . . . kuklkerlingu frá sjálfu Guðs Eigin Landi . . . Hafði meira að segja svartan galdrakassa og töfrasprota . . . Stafur þessi er klofinn í endann og kom gömlum unnendum Andrésar Andar kunnuglega fyrir sjónir, enda alþekkt fyrirbæri úr þeim bókmenntum, einkum fyrir góða þjónustu við útþennslustefnu Onkel Jóakims á sviði gulls og olíu. I barnslegri einfeldni minni hafði ég haldið að stafgreyið væri hugarfóstur Walt Disneys.“ Nokkru fyrr mátti sjá eftirfarandi klausu í grein eftir Sig- urð Þórarinsson: „Ég álit það reginhneyksli að þessi kona skuli hafa verið fengin til þess að koma hingað til lands, og raunar er það furðulegt, að slík miðaldamennska skuli á ein- hvern hátt vera bendluð við vísindi.“ Hvorugur reynir að færa rök fyrir máli sínu, — hægur vandi hefði verið að kynna sér áreiðanlegri heimildir um jarðkönnun en Andrés Önd og finna þá rök með og móti gildi slíkra aðferða og meta á hlutlausan hátt. Þama er þá allt hið yfirvegaða hlutleysi og það í svo skýru ljósi að maður hefur á tilfinningunni, að menn þessir hefðu vel getað hugs- að sér að efna til galdrabrennu. Hér hafa verið dregin fram dæmi um óvísindaleg vinnu- brögð og jafnvel óheiðarleika innan hinna virtu visinda- greina. En verum þess minnug, að áhugamenn um dulræn efni hafa einnig sína veikleika. Má þar nefna bæði slæleg vinnubrögð við rannsóknir og hrein svik. Alvarlegust er þó líklega of mikil trúgirni. Fólk, sem hefur það á stefnuskrá sinni að trúa gagnrýnislaust öllum sögum um dulraen fyrir- bæri hlýtur að vinna málum þessum ógagn þegar til lengdar lætur. Verum þess minnug, að vísindalegar rannsóknir á dulrænum fyrirbærum em í raun í burðarliðnum og á afar viðkvæmu stigi. Á undanförnum ámm hefur rannsóknargrein þessari bor- ist glæsilegur liðsauki úr x'öðum eðlisfræðinga og í leiðinni ný rannsóknatæki og nýjar aðferðir við rannsóknir. Ef vel tekst til um framhald þessara i'annsókna á næstu árum má

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.