Morgunn - 01.06.1981, Side 44
42
MORGUNN
ara en orðin segja, er ég kominn fram á gólf. Þar stend ég um
stund, og virði fyrir mér sjálfan mig, eða þann part af mér,
sem liggur á dívaninum og andar rólega, jafnvel tek á hon-
rnn. Á samt erfitt með að hreyfa hendur hans og fætur. Þeir
virðast svo þungir. Nú líður mér vel, og ég er að hugsa um,
hvert ég eigi að halda. Þá, allt í einu,kemur læknirinn inn
um gluggann eða vegginn, ég get ekki gert mér grein fyrir
því. Það, sem ég furðaði mig mest á, var það, að hann hafði
enga kryppu, sem hann þó alltaf hefir verið með, hvort sem
ég hefi séð hann, er ég var í likamanum eða utan hans, - og
allur var hann unglegri og fegri en ég hafði áður séð hann. -
Hann hefir víst séð, hvað ég var að hugsa, þvi að áður en ég
fengi sagt nokkuð, sagði hann:
„Þú ert að undra þig á útliti mínu, og skil ég það vel, því
að þú hefir aldrei séð mig öðruvísi en i þeirri mynd, sem ég
bar, er ég skildi við ykkar jörð“.
„Hvernig stendur á því, að þú getur birzt eða komið til mín
í þessari mynd nú?“ spurði ég.
Hann eins og hálf-brosti og sagði síðan: „Það yrði of langt
mál að skýra það fyrir þér nú, því að timinn er lítill, og þú
þarft að koma til mín, til Þóru systur þinnar. En eitt get ég
sagt þér, að ég er alls ekki nálægt þér nú, eins og þú heldur
og þér finnst. 1 raun og veru er ég langt í burtu, en þetta er
aðeins mynd af mér, sem ég byggi upp, og þér virðist raun-
veruleg, en þú getur talað við hana og þreifað á henni“.
Er hann sagði þetta, færði hann sig nær, tók í hönd mér
og ég strauk síðan yfir hár hans.
„Samt er ég ennþá fegurri. Þótt þú sért nú án jarðarlíkama
þíns, efast ég um, að þú hafir nógu sterk augu til að sjá mig,
eins og ég er. Ég ætla að reyna“.
Með þessum orðum hélt hann hendinni yfir augu mér, likt
og skyggni, og sagði: „Sjáðu, þarna er ég“.
Mér fannst ég allt i einu finna til svima og mig sveið í aug-
un. Ég sá alls ekki neitt, en tilfinningin var líkust því að horfa
í allt of sterkt rafmagnsljós eða eins og þegar ég var barn og
var að reyna að horfa beint í sólina. Hann losaði um hendina