Morgunn - 01.06.1981, Side 45
SÁLFARIH . . .
43
og sagði: „Nei, Jiað Jiýðir ekki“. Síðan brosti hann og hélt
áfram um leið og hann benti á sofandi likama minn. Ég vil
minnast Jiess hér, að Jiessi læknir er þýzkur eða var það, með-
an hann dvaldi hérna á jörðinni, samt er mér ómögulegt að
muna, hvaða mál við töluðum saman. Mér fannst hann bæra
varirnar og tala, alveg eins og við gerum daglega. „Jæja“,
sagði hann. „Nú er okkur óhætt að fara“. Með þessum orðum
tók hann í hendi mér og við fórum út um gluggann eða vegg-
inn, án þess að nokkuð virtist vera til fyrirstöðu. Áður en
varði vorum við komnir hátt á loft, og svifum áfram. Ég man
ekki eftir, að við mættum neinum og ekki sá ég neitt, nema
ljósleita þoku allt i kring um mig, fyrir ofan og neðan. Áður
en varði vorum við komnir inn í svefnherbergi Þóru systur
minnar, sem býr vestur í Wynyard í Saskatchewan-fylki i
Canada. Þegar þar var komið, sá ég að læknirinn var búinn
að taka á sig þá mynd, sem ég þekkti bezt, en hvar eða hvenær
hann breyttist, er mér ómögulegt að muna. Ég settist á rúm-
brík á rúmi litla frænda míns, sem þar var, en ekki sá ég þó
neinn í rúminu. Systir min virtist sofa, en lét Jió illa i svefn-
inum, að mér fannst. Ekki varð ég var við fleira fólk þar inni,
en hafði þó á tilfinningunni, að fleiri væru þar. Læknirinn
bað mig að sitja alveg kyrran. Fannst mér þá eins og ég væri
að sofna. Það sem ég man næst, er að læknirinn tók í hönd
mér og sagði:
„Nú getum við farið.“
Þá varð mér litið á Þóru og virtist mér hún nú sofa rólega,
en við hlið liennar var lítið barn. — Nú sá ég, að yngri dóttir
hennar, Svava, kom inn í herbergið, og sá ég strax, að hún
var án jarðarlíkama síns. — Hún rak upp stór augu, er hún
sá mig og hljóp um háls mér, kyssti mig og sagði: „Hefirðu
séð hana litlu systur mina?“ Ég ætlaði að svara einhverju,
en læknirinn hélt í hönd mér og við fórum út. Það, sem ég
man næst, er, að ég var aftur kominn i herbergi mitt í Reykja-
vík og sá ég Jiá móður mina alklædda, þar sem hún laut yfir
sofandi líkama minn, eins og hún virtist vera að vekja mig.
Ég spurði nú lækninn, hvort allt væri búið hjá systur minni.