Morgunn


Morgunn - 01.06.1981, Page 47

Morgunn - 01.06.1981, Page 47
SAI.FARIR . . . 45 Loks er eitt atriði í frásögu Benjamíns, sem auðvitað er ekki hægt að byggja á sem sannanaatriði, en er þó eftirtektarvert eigi að síður. Honum finnst Svava litla, dóttir okkar koma til sín, sömuleiðis i sálförum, og spyrja, livort hann hafi séð hana litlu systur sína. Barnið var að visu drengur, og staðhæfing litlu stúlkunnar um systur sína kemur því ekki heim við veru- leikann. En þessi staðhæfing kemur aftur á móti heim við það, sem Svava litla sjálf hélt að væri. — Nokkru eftir að drengurinn fæddist, vöknuðu systur hans, sem sváfu i næsta herbergi. Ég sagði þeim frá því, að þær væru búnar að eign- ast lítinn bróður, en þær voru þá svo sannfærðar um, að það væri systir, að ég átti fullt i fangi með að fá þær til að trúa mér. Með öðrum orðum, hugmyndir litlu stúlknanna, er þær voru nývaknaðar, komu einkennilega heim við það, sem Benja- min finnst að önnur þeirra hafa sagt við sig, meðan líkami hennar enn var í svefni. Mörgum mun finnast samtal Benjamins og hins ósýnilega vinar hans fagurt til umhugsunar. Samkvæmt því eru ferðir hins framliðna lika einskonar sálfarir. Einhver hluti af per- sónuleika hans yfirgefur þann líkama eða það gerfi, sem hann venjulega hefir í dýrð hinna æðri tilverusviða, ef verða mætti, að návist hans við jarðneskan sjúkrabeð hefði heilnæm og styrkjandi áhrif. Segja má, að á þetta séu litlar sönnur færðar í frásögu Benjamins, en mér finnst, að þar sem önnur þýð- ingarmikil atriði reyndust rétt — og þá fyrst og fremst barns- fæðingin sjálf, sé vanhugsað að slá striki yfir þennan þátt úr reynslu sálfarans. Jakob Jónsson. L

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.