Morgunn - 01.06.1981, Blaðsíða 49
SJÁLFSKÖNNUN í GEGNUM DRAUMA
47
þessu alls ekki varið með aðra, eins og oft vill nú vera með
fólk sem gætt er einhverjum óvenjulegum hæfileikmn. Auk
þess að verja tveim árum í umræddri yogastofmm í þetta
sérstaka áhugamál sitt, hefur hann jafnframt viðað að sér
ógrynni af efni og upplýsingum um drauma, allt frá sögu-
legum fróðleik að niðurstöðum af vísindalegum rannsóknum
vorra daga — hversu langt sem þær nú ná, enn sem kom-
ið er.
Samkvæmt kynningarbæklingi Steinberg, var hann á ár-
unum 1972 til 1975 einn af ráðgjöfum kanadisku stjómar-
innar við að finna leiðir til þess að vinna gegn eiturlyfja-
neyzlu — þá á grundvelli kunnáttu sinnar og tækni við ráðn-
ingu drauma. Hann hefur einnig haldið fjölda fyrirlestra
við nafngreinda háskóla og stofnanir í Kanada og t.d. fyrir
samtök geðlækna og geðdeildir ýmissa spítala. Má þar nefna
Ottawa Civic Hospital, Jewish General Hospital og fl.
Grundvallarkenning Gerald D. Steinberg er sú, að í mann-
inum séu þættir sem bjóða upp á nánast ótakmarkaða mögu-
leika hvað sjálfsþekkingu, sköpunargáfu og þroska varðar.
Hann telur drauma verða einn lykilinn að þessari auðlind
og einhvern þann athyglisverðasta. Sérstaklega hefur haim
áhuga á lækningamætti drauma og á þá við merkingu þeirra
- í andlegum jafnt sem líkamlegum skilningi. Þannig er
hann þeirrar skoðunar, að draumar geti gefið mikilvægar
ábendingar mn heilsufar svo gripa megi til gagnráðstafana
í tæka tíð. Þvi felst tækni hans í því að kenna fólki að greina
sína eigin drauma sjálft og að hafa þó einhverja stjóm á
þeim. Hvað þessu viðvíkur, telur hann að hver einstaklingur
verði að koma sér upp sínu eigin kerfi varðandi merkingu
hinna ýmsu drauma og tákna er kunna að koma fyrir í þeim,
eins og t.d. vatn, missir tanna, dýr og hvað mann kann nú
að dreyma. 1 því sambandi leggur hann mikla áherzlu á
að ákveðin tákn geti verið bundin mjög jákvæðri reynslu
og önnur á hinn bóginn voveiflegri reynslu. Þannig gæti
missir tanna þýtt sitt af hverju en m.a. ekkert merkilegra
en það, að tímabært sé að koma sér til tannlæknis. Líkam-