Morgunn - 01.06.1981, Blaðsíða 51
SJÁLFSKÖNNUN í GEGNUM DRAUMA
49
Það er raunar ofurlítið, sem mig langar til að minnast á
i sambandi við heimsókn Steinbergs. Hann kom til landsins
á vegum Sálarrannsóknafélags íslands, skilst mér, og fyrsti
kynningarfundur hans er boðaður i smáauglýsingum Morg-
unblaðsins á þennan máta: (Sjá mynd, 12. marz). 1 auglýs-
ingunni kemur nafn félagsins hvergi fram, og ekki þekkja
nú allir merkið, auk þess sem þessar smáauglýsingar eru
mjög litið áberandi, enda reyndist vera sáralítil þátttaka
fyrst framan af, en varð ágæt er á leið og eitthvað spurðist
um manninn. Ekki er ég að hvetja til skrumauglýsinga, en
væri ekki hægt að fara einhvern milliveg. f fyrsta lagi hlýt-
ur koma erlendra gesta að kosta töluvert, nema þeir taki þátt
í slíku sjálfir, svo hér kemur til fjárhagslegt sjónarmið, eða
rekstrarsjónarmið. I öðru lagi, og það skiptir mestu máli,
þá getur vel verið að námskeið þessi hafi farið fram hjá mörg-
um, sem hefðu hafl bæði gagn og gaman af að sækja eitt-
hvað slíkt.
. Almennur kynningar-
fundur
veröur haldinn í kvöld 12. marz
kl. 21.00 i Félagsheimili Seltiarn-
arness. Fundarefni: Prófessor
Jerry Steinberg heldur fyrirlestur
j um „Sjálfskönnun í gegnum
drauma" og kynnir fyrirhugaö
námskeiö.
Stjórnin.
í
4