Morgunn - 01.06.1981, Síða 63
BJÖRN FRANZSON:
HVAR ER MANNKYNIÐ
Á VEGI STATT?
Erindi þessu hef ég valið fyrirsögnina: „Hvar er mann-
kynið á vegi statt?“ Það er mikil spurning, og ætla ég mér
ekki að svara henni beinlínis á þessum stað, heldur eftirláta
hverjum og einum, þeirra er á hlýða, að svara henni fyrir
sjálfan sig. En ég mun draga fram nokkrar staðreyndir, er
einkenna mannfélag vort á síðari hluta tvítugustu aldar og
þá einkum vaxtarbrodd þess, sem margir myndu vilja kalla,
það er að segja, þjóðfélag hinnar vestrænu menningar. Flestar
eru staðreyndir þessar alkunnar, og hefur margsinnis verið
um þær fjallað í ræðu og riti, en ég veit ekki til, að þær
hafi áður verið dregnar saman i heildarmynd í þeim tilgangi
að rekja þær allar til sameiginlegra róta. Sú mynd, sem ég
ætla mér að draga upp, er að vísu hvorki fögur, glæsileg né
gleðileg, en hún er án efa sönn, það sem hún nær. Margs
konar öfl starfa nú saman til bjargar heimi vorum, og hver
sá, sem þátt vill eiga í því starfi, verður urn fram allt að
gera sér þess grein, hverjar þær meinsemdir eru, sem heim-
inn hrjá. Það virðist nú að vísu orðin tízka að tala með fyrir-
litningu um þá menn, sem eru að ímynda sér, að þeim beri
að leggja eitthvað af mörkum til bjargar heiminum. Samt
er það áreiðanlega svo, að ef enginn hugsaði um annað en
bjarga sjálfum sér og hafa sitt á þurru, þá myndi heimurinn
fara sér að voða fyrr en varði.
Ef spurt væri, hvað mannkyninu byði mesta ógn um þess-
ar mundir, myndu sennilega flestir nefna til hættuna á nýrri