Morgunn - 01.06.1981, Síða 65
HVAR ER MANNKYNIÐ Á VEGI STATT?
63
lykta með stórst.yrjöld, jafnvel kjamorku- og sýklastyrjöld.
Slíkt hugarfar ætti þó sannarlega að vera orðið mannkyninu
jafnfjarrænt og blóðhefndir fyrri alda eða sú siðfræði, að
deilumál ætta og einstakra manna skyldu útkljáð með morð-
um og mannvigum.
Er ekki ástæða til að hafa nokkra áhyggju af famaði þess
heims, þar sem sumar stærstu, voldugustu og auðugustu
þjóðimar verja meira af fé, efnaverðmætum og vísindalegri
orku til herbúnaðar en nokkurrar tiltekinnar starfsemi á
öðrum þjóðfélagssviðum? Um afvopnun er að vísu margt og
mikið rætt, og margir góðir menn leggja því máli lið, en
sú viðleitni rekst eigi aðeins á valdastreitu herveldanna og
ótta þeirra og tortryggni hvers í annars garð, heldur einnig
þá óhugnanlegu staðreynd, að framleiðsla vopna og annars
herbúnaðar er ein helzta gróðalind stórra auðfélaga, sem
sízt vilja missa þann spón úr aski sínmn og em svo voldug,
að þau geta knúið rikisstjórnir til að gerast þeim eftirlátar.
Og sjálf tilvera vopnanna knýr á mn það, að þeim sé beitt.
En á þessari stundu eru háðar styrjaldir i heiminum, eins og
öllum er kunnugt, smástyrjaldir svokallaðar, en meira en
nógu stórar fólki því, sem verður þeim að fórn. Og enn eiga
sér stað andstæður þjóða og kynflokka, er frá sjónarmiði nú-
tíðarmanns að sjá virðast hartnær óleysanlegar, árekstrar-
efni, sem leitt gætu til hemaðarátaka eða borgarastyrjalda
stórkostlegri en nokkurn má gmna. 1 því efni má minna á
síaukinn fjandskap Araba og fsraelsmanna, þar sem hvorir
um sig eru studdir vopnum og fjármunum af hálfu síns stór-
veldis. Minna má á andstæður þær milli austurs og vesturs,
sem sumir nefna andstæður milli lýðræðis og einræðis, en
aðrar andstæður milli auðvalds og sósíalisma, svo og hinar
nýtilkomnu andstæður milli Ráðstjómarríkjanna og Kína,
sem erfitt virðist að sjá fyrir endann á. Minna má á and-
stæður hvitra manna og svartra í Bandarikjunum, sem naum-
ast er hugsanleg nein frambúðarlausn á nema þjóðir þessar
tvær renni saman, líkt og orðið hefur t.d. i Brasiliu og Mexíkó
um hvíta menn og þeldökkva, en í Bandaríkjunum virðist sá