Morgunn - 01.06.1981, Qupperneq 66
64
MORGUNN
kostur svo fjarri lagi, eins og nú horfir, að erfitt er að verj-
ast ótta við það, að þróunin kunni að leiða til ægilegrar innan-
landsstyrjaldar. Enn má minna á andstæðurnar milli auðugu
þjóðanna og hinna snauðu, er byggja mikinn hluta Asíu,
Afriku og suðurhelmings Ameríku. I löndum þessara síðar
nefndu þjóða eru mörg hundruð miljóna manna, sem aldrei
fá að reyna, hvað það er að borða sig sadda, og á þeirri stað-
reynd bera hinar auðugu og iðnþróuðu þjóðir að vísu mikla
ábyrgð. Mikill hluti af þessum auði þeirra hefur öldum sam-
an verið soginn úr löndum þessara fátæku og vanþróuðu
|)jóða. Er öll sú saga harðla ófögur. Nægir þar að minna á
landnám Ameríku, hversu Spánverjar fóru með báli og brandi
um byggðir Indiána í Vestur-Indíum, Mexikó, Suður- og Mið-
Ameríku, lögðu í rústir þorp þeirra og borgir, sviku þá í
tryggðum og drápu síðan miljónum saman og unnu að lok-
um það vanheilaga afrek i nafni kirkju og kristindóms að út-
rýma gersamlega merkilegri hámenningu, sem um margt
var menningu innrásarmanna sjálfra miklu fremri. Svipaða
sögu er að segja af stofnsetningu hinna miklu ríkja hvítra
manna í Norður-Ameríku.
Fyrir allt þetta er hviti maðurinn í mikilli skuld við bræð-
ur sína annars litarháttar. Sýnir hann nokkurn lit á þvi að
greiða þá skuld? Að vísu er nú mikið rætt um aðstoð við
vanþróaðar þjóðir og jafnvel nokkuð að þvi gert að veita
slíka aðstoð, en staðreyndin er oft á tíðum sú, að þær þjóðir,
sem aðstoðina láta í té, hrifsa til sín meiri verðmæti úr lönd-
um þessum en þær veita þangað. Jafnvel maturinn er flutt-
ur öfuga boðleið, frá hinum soltnu til hinna söddu. t grein,
sem Norðmaðurinn Ottar Brox ritar um þessi mál og birtist
i Reykjavíkurblaðinu Timanum nú i haust, segir svo: „Þó
að Norðmenn flytji skreið til Afríku og saltfisk til Mið- og
Suður-Ameriku, einkennir það heimsviðskiptin með eggja-
hvítuefni fyrst og fremst, að það rennur straumur af þessu
lifsnauðsynlega efni frá fátækum og hungruðum þjóðum til
Vesturlanda, þar sem ofát er að verða þjóðarsjúkdómur . . .
Eggjahvítustraumurinn sýnir, hvernig valdahlntföllin eru i