Morgunn - 01.06.1981, Síða 71
HVAR ER MANNKYNIÐ Á VEGI STATT?
69
farið með það á haf út og því sökkt þar. Einn af þingmönn-
um demókrata skýrði frá þessu í þinginu, og spunnust um
það miklar umræður. Liðsforingi nokkur í Japan sagði frá
þvi nýlega, að japanska herstjórnin hefði i striðslok látið
sökkva þrju þúsund eiturgassprengjum í Menam-fljót í Thai-
landi, skammt frá höfuðborg landsins Bangkok. Og mjög
skammt er síðan danskir sjómenn sýktust af sinnepsgasi, er
komizt hafði í net þeirra. En í lok síðari heimsstyrjaldarinnar
höfðu Bretar sökkt i Eystrasalt rúmlega 30 000 eiturgasgeym-
um, sem teknir höfðu verið af Þjóðverjum. Þetta hefur vakið
mikinn óhugnað meðal strandbúa við Eystrasalt. Enginn
veit, hvenær geymarnir kunna að ryðga í sundur að fullu,
og myndi þá gasið berast í sjóinn og eitra fisk og veiðarfæri.
— Ekkert hefur frétzt um það, hvernig Ráðstjórnarríkin,
annað mesta herveldi heims, leysa þetta vandamál. En hvað
sem þvi líður, getur það aldrei talizt annað en glæpsamlegt
ábyrgðarleysi, er herstjórnir taka það ráð að sökkva slíkum
voðaefnum í sjó, þó að handhægt sé í svip. Vitanlega væri
hver aðferð óafsakanleg önnur en sú að láta kljúfa eiturefni
þessi i óskaðlega efnaflokka, þó að hún hlyti að visu að reynast
mun. kostnaðarsamari.
Maðurinn saurgar eigi aðeins vötn jarðar og þurrlendi.
Lofthjúpurinn virðist í engu minni hættu. Verksmiðjureyk-
háfar, bifreiðir, flugvélar, eldflaugar og önnur tæki miljón-
um saman spúa út í andrúmsloftið sóti, reyk og eiturgufum,
sem skaða öndunarfæri manna og geta valdið sjúkdómum
svo sem krabbameini, að því er rannsóknir hafa leitt í ljós.
f erlendri grein um þessi efni er getið um rannsóknir vísinda-
manna á mengun loftsins í New York i Bandaríkjunum.
Þeir segja, að hver borgarbúi andi dag hvern að sér eitur-
efnum, er svari til þess, að hann reykti níu vindlinga. Sé
þetta rétt, þá er það eins og lögboðið væri í einhverri borg,
að enginn íbúi mætti vera í lóbaksbindindi, ekki einu sinni
ungbörn. En hér kemur einnig annað til greina, sem orðið gæti
örlagaríkt. Sú mikla brennsla á kolum, olíu og öðru eldsneyti,
sem fram fer á jörðinni, einkum af völdum ýmiss konar