Morgunn - 01.06.1981, Síða 76
HILDUR HELGA SIGURÐARDÓTTIR:
DULSÁLARFRÆÐINGAR ÞINGA
Rœtt viS nokkra þátttakendur á alþjöSlegu þingi
dulsálarfrœðinga, sem haldiS var í Reykjavík á dögunum
(13.-16. áigúst 1980).
Eins og fram hefur komið í fréttum var í vikunni sem leið
haldið í Reykjavik alþjóðlegt ]úng sérfræðinga í rannsóknum
dulrænna fyrirbæra, „Parapsychological Association“. Hér á
landi voru samankomnir um 100 vísindamenn, hvaðanæva úr
heiminum, sem eiga það sameiginlegt að stunda vísinda-
legar rannsóknir á dulrænum fyrirbærum, sumir eingöngu,
aðrir í tengslum við aðrar vísindagreinar. Ætla má að margir
Islendingar hafi sýnt þingi þessu og þvi sem þar fór fram,
áhuga, þar eð þessi mál hafa löngum verið mönnum hug-
leikin hérlendis. Að sögn dr. Þórs Jakobssonar, sem var einn
af skipuleggjurum þingsins og blaðamaður Morgunblaðsins
hitti að máli við opnun þess, var einn aðaltilgangurinn með
þinghaldinu sá, að fulltrúar gætu hist og borið saman bækur
sínar varðandi rannsóknir á hinum ýmsu sviðum dulsálar-
fræði. Tilhögun þingsins var með tvennu móti; annars vegar
skýrðu einstaklingar frá niðurstöðum af rannsóknum og hins
vegar voru settir á fót umræðuhópar. „Mjög strangar kröfur
um akademíska ]ijálfun eru gerðar til manna i þessum félags-
skap,“ sagði Þór, „ félagar eru á þriðja hundrað talsins, bú-
settir víða um heim og eru nær allir þeirra starfandi við há-
skóla og vísindastofnanir. Dr. Erlendur Harldsson er eini Is-
lendingurinn, sem er meðlimur í félaginu og var þingið, sem
er hið 23. i röðinni, haldið hér á landi að þessu sinni fyrir
hans tilstilli, i hoði Félagsvisindadeildar háskólans.“