Morgunn


Morgunn - 01.06.1981, Page 77

Morgunn - 01.06.1981, Page 77
DULSÁLARFRÆÐINGAR þinga 75 Dagskrá þingsins var mjög viðamikil, fjöldi fyrirlestra mikill og hver stund nýtt, þessa fáu daga, sem það stóð, en blaðamaður náði á fyrsta degi ráðstefnunnar tali af tveimur þátttakenda, þeim John Beloff frá Edinborgarháskóla og William G. Roll, en hann er forstöðumaður rannsóknastofn- unar á sviði dulsálarfræðirannsókna, „Psychical Research Foundation" í Durham í N.-Karólínu, Bandaríkjunum.* Þess skal getið, að nokkm' hinna mörgu vísindalegu hugtaka, sem notuð eru í umræðu um þessi mál eiga sér ekki beina hlið- stæðu í íslensku máli og hefur sá kostur því verið valinn að láta hin erlendu fræðiheiti fylgja með í viðtölunum, a. m. k. að nokkru leyti. Dulsálarfræði er sú þýðing, sem íslenskir fræðimenn, er fengist hafa við rannsóknir á þessum sviðum, hafa komið sér saman um að nota í stað „parapsychology“, sem er nokkurs konar samheiti yfir þá hliðargrein hefðbund- innar sálarfræði, sem lýtur að rannsóknum á yfirskilvitleg- um fyrirbærum. Áætlað er að birta fleiri viðtöl síðar. 'Viðtalið við W. G. Roll birtist í síðasta tölublaði Morguns. Ritstj.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.