Morgunn - 01.06.1981, Blaðsíða 81
HILDUR HELGA SIGURÐARDÓTTIR:
Brúar endurholdgun bilið milli lífs
og dauða?
Viðtal við prófessor lan Stevensan, sem gert hefur
ýtarlegustu rannsóknir á endurholdgunartilfellum,
sem gerðar hafa verið og ferðast um fjórar heimsálfur
í þeim tilgangi. En Stevenson er einnig þekktur geð-
lœknir í Bandaríkjunum og forseti alþjöðasambands
dulsálarfrœði nga.
Forseti Alþjóðasambands dulsálarfræðinga er Ian Steven-
son, prófessor í geðlækningum, frá Virginíu-háskóla í Banda-
ríkjunum. Hann hefur fengist við dulsálarfræðilegar rann-
sóknir í aldarfjórðung og helgað sig þeim eingöngu síðastliðin
þrettán ár. Stevenson er einna þekktastur núlifandi sérfræð-
inga á þessu sviði. Hann hefur ferðast vítt og breitt um heims-
byggðina við rannsóknir á tilfellum og ritað bækm' um rann-
sóknir sínar, sem þykja mjög athyglisverðar af þeim sem til
þekkja. En endurholdgun, eða tilfelli, sem benda til þess að um
hana kunni að vera að ræða, er eitt höfuðviðfangsefni Steven-
sons og er hann sá eini af þátttakendum þingsins, sem stundað
hefur víðtækar rannsóknir á fyrirbærinu.
Blaðamaður Morgunblaðsins átti tal við Ian Stevenson á
síðasta degi þings dulsálarfræðinga i Háskóla Islands. Auk
rannsókna hans á endurholdgunartilfellum í hinum ýmsu
löndum, bar á góma tilraunir þær, sem framkvæmdar voru
til að kanna miðilshæfileika Hafsteins Björnssonar í Banda-
rikjunum fyrir nokkrum árum.