Morgunn


Morgunn - 01.06.1981, Side 85

Morgunn - 01.06.1981, Side 85
DULSÁLARFRÆÐINGAF. þinga 83 og skamma börnin, eða segja þeim að vera ekki með þetta óráðshjal. Börnin hætta því smátt og smátt að tala um minn- ingar, sem þau kunna að hafa um fyrra líf og hinir fullorðnu álykta sem svo, að þarna hafi fjörugt ímyndunarafl verið á ferðinni. Hins vegar fæ ég oft bréf frá mæðrum, sem segjast sjá eftir að hafa badt börn sín niður í þessu tilliti. Þau hafi talað mikið um fyrra líf, meðan þau voru mjög ung en séu nú hætt því.“ Stevenson var spurður, hvort þarna væri e. t. v. verið að grafast fyrir um hluti, sem betur mættu kymr liggja, fyrst börnin gleymdu þessum „minningum" oftast er þau ellust og ættu öðrum kosti erfitt með að sætta sig við tilver- una. Játti hann því að nokkru leyti, en sagði: „Mér finnst það aðeins réttlætanlegi frá vísindalegu sjónarmiði, því sumir sem rannsakaðir hafa verið, lenda i eins konar gildru eða sjálfheldu milli fyrra lífs og þess „nýja“ og einangrast frá umhverfi sínu. Annars vegnar þeim flestum vel eftir nokkum umbrotatíma og í flestum tilfellum samlagast þau því lífi, sem þau eru fædd til í þetta skiptið. ,,Tökum minna mnrk á fullorðnum“. „Ég hef einnig fengist við rannsóknir á fullorðnum," sagði Stevenson, „en börnin eru áreiðanlegri. Hjá börnunum er þetta sjálfsprottið, en erfiðara er að segja til um fullorðna. Þeir hafa verið í of mikilli snertingu við fjölmiðla o.s.fi-v. Fyrirbæri eins og ósjálfráð skrift og tónlist eru oftast sprottin úr undirmeðvitund fólksins sjálfs. Þó eru til áhugaverð til- felli, t.d. þegar fólk talar framandi tungumál undir dáleiðslu- áhrifum, tungumál, sem næstum ógjörniugur er að það hafi getað tileinkað sér með venjulegum hætti. Það er einna helst að slík tilfelli séu trúverðug, en þau eru samt ekki eins sjálf- sprottin og hjá börnunum og yfirleitl gef ég ekki mikinn gaum að fullorðnum i þessum rannsóknum.“

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.