Morgunn - 01.06.1981, Side 88
86
MORGUNN
komið væri við þá. Eðlisfræðingar vilja stuðla að endurbót-
um á þessum rannsóknum, með því að innleiða þróaðan tækja-
búnað til notkunar við tilraunir.
Því er þannig farið með tilraunir af þesu tagi, að þær virð-
ast aðeins vera árangursrikar þegar fólk er í vissu hugar-
ástandi, vel upplagl. Því ríður á að þróa útbúnað, sem hefur
meiri hvetjandi áhrif á þann, sem tilraunin er gerð á, en ten-
ingarnir.
Sem nokkurs konar samheiti yfir rannsóknir á því hverju
fólk geti áorkað með hugarorku einni saman, notum við orða-
tiltækið „mind over matter“, þ.e. yfirburðir hugarorkunnar
yfir efnisheiminum.
Dæmigerð tilraun, sem framkvæmd er á þessu sviði fer
þannig fram, að við sýnum fóiki tæki, sem á eru margar litlar
ljósaperur, raðað í hring, sem kviknar og slokknar á til skiptis
i handahófskenndri röð. Fólk er síðan beðið að hafa áhrif á
það í hvaða röð kviknar á perunum. Yfirburðir hugarork-
unnar yfir efnisheiminum, eru eftir rannsóknum okkar að
dæma, veikir. En einhver kraftur er samt þarna til staðar.
Ef til vill of veikur til að koma að notum, en af hverju setti
náttúran hann þarna? Það vitum við ekki og það er þessi
óvissa, sem gerir þetta svið svo spennandi fyrir raunvísinda-
menn,“ segir Schmidt.
„Fjarhrif eru ekki rafmagnsbylgjur“.
Sumir halda að mannkynið hafi haft meiri not af hugar-
orkunni áður en síminn kom til sögunnar. Allt um það er
eitt af vandamálum okkar, sem fáumst við rannsóknir á
hvers konar yfirskilvitlegri skynjun, það, að krafturinn vill
þverra fólki, þegar inn í rannsóknarstofuna er komið, á
stundum a.m.k. Við höfum þvi ekki enn náð þeim árangri
sem við óskum eftir. Það má líkja yfirskilvitlegri skynjun
við sköpunargáfu. Fólk hefur hana í misjafnlega rikum mæli
og þarf að vera i „réttu“ hugarástandi til að geta nýtt sér
hana. Aftur á móli þekkjum við uppbyggingu heilans og vit-