Morgunn - 01.06.1981, Qupperneq 89
DUI.SALARFRÆÐINGAR I’INGA
87
um ýmislegt um ferli hans. T. d. tel ég fjarhrif (telepathy)
fullsannað fyrirbæri. Þau eru virk, þótt um órafjarlægðir
sé að ræða. En fjarhrif eru ekki rafbylgjur, það er alveg
öruggt, og því eitt af þvi ótalmarga, sem okkur skortir skýr-
ingu á, enn sem komið er.
„Framsýni“.
Eg hef einnig fengist við tilraunir, sem miðuðust við það
að kanna hæfni fólks til framsýni, „precognition“. Til að fá
einhverskonar tölulegt yfirlit yfir hæfni miðla, sem kváðust
geta sagt fyrir um óorðna hluti, var tekið i notkun tæki, sem
raunar var mjög einfalt í uppbyggingu, en þjónaði þó til-
gangi sínum vel. Þetta er ferhyrndur kassi, sem á eru fjórar
ljósaperur, gul, rauð, græn og blá. Líkt og í fyrri tilrauninni
kviknar á þeim í handahófskenndri röð, en í þessari tilraun
áttu þátttakendur að segja fyrir um það, í hvaða röð myndi
kvikna á perunum. Með ágiskun einni saman er liklegt að sá,
sem tilraunin er framkvæmd á, giski rétt í um það bil 25%
tilfella. Fari hlutfallstalan yfir það mark, bendir það til þess
að um annað og meira en helbera ágiskun sé að ræða. Árang-
urinn var mjög misjafn. Sá sem hæsta hlutfallstöluna hlaut,
þ. e. gat sagt rétt fyrir um það , hvaða röð myndi kvikna
á lömpunum í flest skiptin, var maður, sem alla ævi hafði
dreymt fyrir daglátum. En eins og áður hefur komið fram,
skiptir hugarástand fólks miklu i þessu samhengi. Áberandi
var hve þeim, sem voru „vel upplagðir”, gekk betur. Þá virð-
ist líka skipta máli að fólk hafi trú á jákvæðri útkomu i til-
raunum sem þessum, sé ekki neikvætt. Þessi tilraun var fram-
kvæmd á fleira fólki en atvinnumiðlum, m.a. börnum, mín-
um eigin og öðrum. IJtkoma var mjög góð hjá mínum börn-
um, en slakari hjá ókunnugum börnum. Rennir það stoðum
undir það, sem ég sagði um áhrif umhverfis og hugarástands.
Börnin mín voru i umhverfi, sem þau þekktu og slökuðu
þvi á og höfðu gaman af öllu saman, en hin voru kannski
spennt og óörugg undir framandi kringumstæðum.