Morgunn - 01.06.1981, Page 92
90
MORGUNN
Ég þakka Björgvin fyrir hans góðu störf í þágu félagsins
og einnig sendi ég Dagbjörtu mínar beztu þakkir fyrir hennar
góða framlag, því að málefnið var sameiginlegt áhugamál
þeirra hjóna.
Ég vona að hluti af uppskeru margra ára leitar að þekkingu
og reynslu hafi skilað sér í að gera lokaskrefin léttbærari.
Ég veit að Björgvin hafði gott og nothæft veganesti, sem hann
þurfti að vísu fyrr á að halda en aðstandendur og vinir ætluðu,
en ferill hverrar sálar er einstaklingsbundinn.
Dagbjörtu, dætrunum og öðrum aðstandendum votta ég
samúð mína.
Ég óska Björgvin fararheillar og gæfu á nýjum sviðum og
veit að þar verður hann einnig góður liðsmaður, og kveð góð-
an samstarfsmann og vin.
Gúðmundur Einarsson,
forseti Sálarrannsóknafélags íslands.
Andlátsfregn vinar míns og skólabróður, Björgvins Torfa-
sonar, kom sem reiðarslag yfir okkur samstarfsmenn hans.
Hann hafði staðið af sér erfiða skurðaðgerð i haust og við
vorum að gera okkur vonir um að sjá hann aftur hressan i
hópi okkar, þegar vorið færi að nálgast. Því er þó ekki að
neita að annað veifið gætti nokkurs uggs meðal okkar þar sem
við erfiðan sjúkdóm var að stríða.
Kynni okkar Björgvins hófust ,er við þreyttum inntöku-
próf í 3. bekk Verzlunarskóla fslands árið 1944. Sú vinátta,
sem þá var stofnað til, rofnaði aldrei.
Björgvin Torfason var fæddur í Vestmannaeyjum 7. ágúst
1925. Foreldrar hans voru Torfi Einarsson formaðm- þar og
kona hans Katrín Ólafsdóttir.
Að loknu barna- og gagnfræðaskólanámi í heimabyggð
sinni innritaðist Björgvin, eins og áður er sagt, í Verzlunar-
skóla fslands 1944 og lauk þaðan stúdentsprófi 1948. Þaðan
lá leiðin til Kanada þar sem hann slundaði háskólanám i eitt ár.