Morgunn - 01.06.1981, Page 96
94
MORGUNN
í
30. nóvember 1980 og 30. og 31. marz s.l. að Skúlaskeiði 2,
hjá Soffíu Sigurðardóttur. Henni lil aðstoðar við móttöku
gesta hefur verið Hólmfríður Finnbogadóttir. Alls komu 131
á einkafundi til Einars. Almennir lækningafundir voru í
Langholtskirkju í nóv. og marz s.l., og var mikið fjölmenni á
þessum fundum.
Það er oft lítill fyrirvari á, þegar Einar kemur suður til
starfa. Þess vegna hefur stjómin sjálf reynt að ná til félags-
manna, og látið þá vita um komu Einars. Við viljum beina
þeim tilmælum til þeirra, er telja sig hafa þörf íyrir að hitta
Einar, að hafa samband við stjórnina strax í haust. Einar
starfar hér í Hafnarfirði á vegum félagsins, og því leggjum
við i stjórninni áherzlu á það, að félagsfólk hafi forgang.
Félagsmerki Sálarrannsóknarfélagsins í Hafnarfirði var
endanlega utbúið s.l. haust, og hefur félagið jafnan síðan
auglýst undir merkinu í dagblöðum. Jafnframt var útbúin
sérstök fundaáætlun með merki félagsins, sem hefur verið
dreift til félagsmanna, og á það að vera til hagræðis.
Stjórnin færir félagsmönnum og gestum beztu þakkir fyrir
góða fundarsókn og væntir áframhaldandi góðrar samvinnu
við félagsmenn.
Fyrir hönd stjórnar SRFH
GuSlaug Elísa Krisíinsdóttir