Morgunn - 01.12.1984, Side 58
132
MORGUNN
Innan hvers heims eru svo þessir litir endurteknir, þá
í sömu röð og orkustöðvar mannsins, en í mismunandi
tíðni og léttleika, eftir því hvort innar eða ofar í heimun-
um, líkt og í tónum tónstigans, sem alltaf verður bjartari
þegar ofar dregur. Þar kemur því í ljós eðli heimanna
líkt og tíðni litanna því hver heimur hefur innbyrðis 7 svið.
Þetta eru sömu litir og í regnboganum — en regnboginn
er sáttmáli milli guðs og manna eða við getum sagt að
regnboginn sé brú milli himins og jarðar, eins og orku-
stöðvarnar brú milli heimanna og mannsins.
Því — hvirfilstöðin höfðar til efnisheimsins.
Ennisstöðin höfðar til geðheimsins.
Hálsstöðin höfðar til hugheimsins.
Hjartastöðin höfðar til innsæisheims.
Magastöðin til andlega heimsins.
Miltisstöðin höfðar til eindarheimsins og
Mænusólarstöðin til guðlega heimsins.
Maðurinn er spegilmynd guðs.
Ég vil meina að séu orkustöðvar okkar vel tengdar,
getum við betur skynjað lífið, þessi fínlegri svið og heima,
og þær verur sem þar búa. En hvernig tengjum við orku-
stöðvarnar?
Með ástundun á hinum innri veruleika — með hugleiðslu
— með jóga — með því að temja okkur — líkamlega sem
andlega og með því að temja draumaveröid okkar, veita
öllu andlegu lífi athygli.
Því miður þá er meðvitund margra þannig farið, þótt
þeir starfi mikið og læri á nóttunni á innri sviðum eða
heimum þá muna þeir lítið sem ekkert þegar í jarðlíkam-
anr er komið. Ef komið væri rétt til baka með minnið
tært væri viðhorfið öðruvísi á öðrum heimum og við-
skilnaðurinn ekki eins erfiður. Nokkrir hafa þroskað hjá
sér óslitna meðvitund — eða, eins og ég kalla það, kunna
að vakna, en þannig verður það einhverntímann hjá okk-