Morgunn - 01.12.1989, Qupperneq 36
AF FUNDUM OG NÁMSKEIÐUM
MORGUNN
einhvern lit og sent orku hans inn í miðjan hring. Úr hring-
miðju kemur ljóssúla eða orka, sem hægt er að senda til hjálp-
ar. Hjálparar að handan leggja allt upp úr einlægni og róleg-
heitum — tími er þeim ekki atriði — af honum hafa þeir nóg.
F»ar sem mannfólkið er með hugsun vill það sjá og heyra allt
— allt bæði gott og vont.
Hugsanaflutning má finna í hring og daglega lífinu.
Skynjun dulnæmis — þið finnið hvort satt eða ósatt sé sagt í
kringum ykkur.
Læknun — Læknamiðlun. Margir koma til miðils án trúar á
spíritisma. Hafi manneskja hæfileika, getur hún undir vissum
kringumstæðum sent út kraft, án þess að vera miðill — því
sjúkur vill alltaf bata — og hjálp er því til.
Flestir halda að æðsta takmarkið sé að verða skyggn, en sá
sem ekki hefur hæfileika verður aldrei skyggn né miðill.
Ef þið þjálfið ykkur og hafið þetta í huga og hafið í ykkur
dulræna hæfileika — berið þið þetta áfram — en þið truflist
oft, dyrabjalla og sími hringja í sífellu.
Margir miðlar heyra og sjá — sumir byggja á heyrn, en ekki
sjón. Ef þið sitjið í hring skuluð þið gefa ykkur góðan tíma.
Það geta allir staðið upp og blaðrað, án þess að hafa getu til að
fara rétt með, þið skulið því gæta ykkar, aðeins þeir sem ná
sambandi yfir, eru hinir réttu miðlar. Öll öfl eru jákvæð eða
neikvæð.
Hugleiðingar um lœkningar.
Læknar eða sambandsmiðlar, geta oft lent í erfiðleikum
með að koma sínu fram, vegna vanþjálfunar. Bæði Hinduar —
sem eru eldri ættbálkur — og Egyptar, telja sig liafa fundið
upp huglækningar. Kristin kirkja er byggð upp á huglækning-
um — eða læknamiðlun. í Englandi leyfa allar kirkjur andleg-
ar lækningar.
Allar hugsanir og erfiðar t.d. afbrýði, ágirnd og öfund geta
verið undirrót sjúkdóma og líkamslegra veikinda. Mörg lyf
sem læknar nota í dag, eru fundin upp á dögum Hyppocrades-
34