Morgunn - 01.12.1989, Blaðsíða 52
LEIÐTOGAR BANDAMANNA
MORGUNN
Þrenningin verður fullkomin þegar eftirmaður minn hefur lok-
ið verki sínu.“ Lincoln hélt áfram; „Mér leyfist hvorki að láta
uppiskátt að hvaða marki Franklin Delano er undir hand-
leiðslu minni né hvenær verki hans lýkur.“
Einn fundarmanna, Ralph Pressing gaf út spíritistablað.
Hann spurði gestinn að handan hvort Roosevelt væri sér með-
vitaður um leiðsögn. „Já“ svaraði Lincoln, „en honum finnst
hann ekki geta viðurkennt þetta eða skilið a.m.k. ekki meðan
hann gegnir þessu embætti."
Hr. Pressing tók ljósmynd. Þegar hún var framkölluð komu
í ljós andlit fólks að handan, þar á meðal andlit Abrahams
Lincolns.
Snemma á stjórnmálaferli sínum þegar Roosevelt var ríkis-
stjóri New York, hafði hann áhuga á áætlun um stofnun til að
kanna nútímasálfræði. Hún átti að vera vel búin tækjum og
hafa prófessora og miðla á launum.
Árið 1947 sagði Hannen Swaffer blaðamaður og einn af
brautryðjendum spíritista að miðill hefði flogið reglulega frá
vesturströnd Bandaríkjanna til Washington D. C. á stríðsár-
unum til að halda fundi með Roosevelt.
Bandaríski sjáandinn, Jeane Dixon sem spáði rétt fyrir um
nokkra atburði í sögu Bandaríkjanna, gaf forsetanum ráð árið
1944. „Segðu mér,“ bað hann, „hve langan tíma á ég eftir til að
ljúka verki mínu?“ Frú Dixon svaraði; „Ekki meira en fram á
mitt næsta ár.“ „Ég hafði vonast eftir meiri tíma“ sagði Roos-
evelt.
Spáin rættist. Roosevelt lést í svefni 12. apríl 1945, aðeins 18
dögum áður en Hitler skaut sig til bana í byrgi sínu í Berlín.
Fáum dögum frá andláti Roosevelts, vottaði spíritistaleið-
beinandinn Silver Birch honum virðingu sína og sagði m.a.:
„Pessi maður mun af mikilli kunnáttu og miklum krafti halda
áfram að þjóna fólki sínu sem og öllu fólki sem reynir að lifa í
ljósgeisla frelsisins sem er þeirra réttur við fæðingu.“ Að sögn
leiðbeinandans var Roosevelt fæddur miðill.
Upptökur með endurkomu an^a Roosevelts eru til. Eins og
við munum sjá hafði hann samband í gegnum írskan miðil,
Geraldine Cummins, til að biðja samstarfsmann sinn,
50