Útvarpstíðindi - 11.11.1940, Page 12
eiginlega gerður líkt og rennibekk-
ur sem stendur upp á endann. Á
honum er lárétt skífa, sem platan
hvílir á, og er henni snúið af raf-
magnsmótor. Snúningshraða f síf-
unnar má stilla hvort heliur er á
78 snúninga á mínútu e5a 35>/3
snúning á mínútu. Meðan á upptök-
unni stendur, færistrafsegullinn með
plötuskeranum sjálfkrafa hægt frá
ytri rönd plötunnar og inn að miðju
um leið og platan snýst, og ristir
demanturinn þá skoru í plötuna í
jöfnum spíral frá ytri brún og inn
eftir plötunni. Vegna rafsveiflanna,
sem samtímis berast gegnum vafn-
inga rafsegulsins, sveiflast eða titrar
plötuskerinn með jdemantinum til
hliðar og spíralskoran verður því
bylgjótt í takt við upphaflegu hljóð-
sveiflurnar.
Venjulegar plötur eru 25 eða 30
cm. að þvermáli, en sumar eru rúm-
lega 40 cm. Venjulega er snúnings-
hraðinn 78 snúningar á mínútu, en
á þessu tæki má einnig stilla hann
33Vá snún. á mín. Á 40 cm. plötu
má með þessum hæga hraða (331/3
sn./mín.) taka upp hljóð í samfleytt
15 mínútur á eina plötusíðu, i stað
þesS að venjulega er tíminn aðeins
3—4 mínútur á plötusíðu.
Þær plötur (aluminiumplötur með
lakkhúð), sem notaðar eru við
þetta hljóðritunartæki, hafa mjög
litla suðu, en góð tóngæði, þola all-
mikla notkun án verulegs slits,
geymast vel og er lítið hætt við
skemmdum, þótt þær komi í sól eða
hita. Hins vegar eru þær nokkuð
dýrar.
Þegar snúningshraðinn er 331/3
snún./mín. er hætt við, að háir tónar
deyfist óeðlilega mikið við upptök-
una, en úr því má bæta með því að
magna rafsveiflur með háa tíðni
sérstaklega mikið, áður en þær eru
leiddar til plötuskerans. Magnar-
inn, sem tækjunum fylgir, er
þannig gerður, að hann má stilla
þannig, að hann magni hæstu tón-
ana sérstaklega mikið, eða dýpstu
tónana sérstaklega mikið.
Á hljóðritanum er sérstök raf-
magnshljóðdós, 0g má því einnig
nota hljóðritann sem grammófón,
þegar maður óskar að heyra, hvað
hefir verið tekið upp á plötu. Nálin
í hljóðdósinni fer þá eftir skorunni
í plötunni, sveiflast til eftir skoru-
bylgjunum, 0g tilsvarandi rafsveifl-
ur framkallast þá í spólu hljóðdós-
arinnar. Þær eru svo leiddar til
magnarans, sem gerir þær margfalt
sterkari, og þaðan eru þær svo
leiddar til gjallarhorns, sem breyt-
ir þeim í loftsveiflur, sem berast til
eyrna áheyrandans.
Þessi nýju hljóðritunartæki hafa
reynast mjög vel, og er búizt við, að
þau komi að miklum notum hjá Rík-
isútvarpinu í framtíðinni.
VIZKUKORN
DökkhærSar stúlkur gabba oft, en ljós-
hærjBar stúlkur svíkja alltaf.
Enginn hefur leyfi til aS njóta hamingju,
nema hann skapi hamingju öðrum til handa.
Helen Keller.
Gefðu mér ekki gull í baug,
gefðu mér járn í plóg.
G. Böðvarsson.
Við berum elcki vii’ðingu fyrir fátæktinni
sjálfri, lieldur þeim manni, sem hún getur
hvorki beygt né lítillækkað. Seneca.
Kínversk spakmreli:
Oft er slæmur eiginmaður góður faðir,
en, slæm eiginkona er aldrei góð móðir.
Það er misskilningur, að fegurðin búi á
vöngum konunnar, hún býr í augum karl-
mannsins, sem á horfir.
60
ÚTVARPSTÍÐINDl