Útvarpstíðindi - 16.12.1940, Blaðsíða 5
í landinu, kemur nú í heimsókn til
Úlfstjörau, ásamt skáldinu Eiríki
Bogárd. Það kemur í ljós, að Reback
á erindi við soninn, Helga stúdent,
en ekki húsbóndann. Hann fær hinum
unga manni í hendur skjöl, sem bera
það með sér, að hann hefur verið út-
nefndur af uppreisnarmönnum til
þess að skjóta landsstjórann.
í 2. þættinum fáum við að vita, að
Helgi hefur kynnzt ungri stúlku,
ögdu að nafni, og hafa þau fellt hugi
saman. í þáttarbyrjun tjáir- Helgi
ögdu, að hann eigi að fremja verkn-
að sinn næsta föstudag — og eigi því
aðeins eftir tvo daga ólifaða og það
jafnt, hvort áformið heppnast eða
ekki, því mistakist honum verkið,
muni uppreisnarmenn sjá fyrir hon-
um. Þegar Agda verður þessa
áskynja, krefst hún þess, að fá að
deyja með unnusta sínum.
Foreldrar Helga koma þeim að ó-
vörum, en honum tekst að skjóta
ögdu undan og blekkja föður sinn.
1 3. þætti ákveður Jóhann Úlf-
stjarna að leggja niður embætti sitt
og hyggst með því að ná sættum við
son sinn. Af tilviljun kemst hann að
leyndarmálinu, er dr. Reback heim-
sækir hann enn einu sinni, og þá
krefst hann þess af dr. Reback, að
sonur hans verði leystur frá því að
fremja þennan verknað. En þess er
enginn kostur.
Lárus Sigurbiömsson hefur þýtt
leikinn og lagað hann til flutnings í
útvarp.
Þess skal getið, að hvorki Rússland
né Finnland eru nefnd í leikritinu og
Schanman ekki nefndnr sínu rétta
nafni, heldur Helgi Úlfstiarna. en
það er á allra vitorði, hvað við er
átt.
Eins og kunnugt er, tóku Rússar
Finnland með ófriði á öndverðri 19.
öld. Finnar undu aldrei rússneskum
yfirráðum og alla öldina ólgaði óá-
nægja. Þegar Nikulás II. kom til
valda í Rússlandi, virtist þó horfa
betur fyrir Finnum, m. a. var rit-
frelsi aukið í landinu. En 1898 kom
það eins og þruma úr heiðskíru lofti,
að herlöggjöf Finna var samræmd
Rússneskri herlöggjöf. Sama ár var
Bobrikow gerður að landsstjóra. öll
þjóðin komst í uppnám, því hann var
áður alræmdur fyrir harðstjóm sínrt.
1/> miljón manna undirrituðu bæna-
skjal og sendu keisaranum og báðu
Ævar Kyaran
leikur hlutverk
Helga
hann að virða hin fornu réttindi
landsins. Bænaskjalið naut sfuðn-
ings 1500 frægra manna í öðrum
löndum, en 500 menn fóru á fund
keisara með bænaskjalið, en hann
neitaði að veita þeim áheyrn.
Bobrikow var nú ekki aðgerðalaus.
Hann kom á hinni ströngu ritskoðun,
jók lögreglueftirlitið, bannaði funda-
höld, hafði njósnara á hverju strái
og fyrirskipaði rússnesku sem
kennslumál í öllum skólum.
1901 var svo finnski herinn lagður
niður og sameinaður her Rússa í
Finnlandi. 1903 varð Brobikow gerð-
ur einvaldur í Finnlandi. Allir, sem
neituðu að gegna herþjónustu, voru
reknir í útlegð, þ. á. m. flestir helztu
menn þjóðarinnar. En auk þess kvað
svo í’amt að almennum landflótta,
vegna kúgunarinnar, að heilar kirkju-
sóknir tæmdust af fólki. Þá var það
að Bobrikow var myrtur.. En um
ÚTVARPSTÍÐINDI
133