Útvarpstíðindi - 16.12.1940, Síða 6

Útvarpstíðindi - 16.12.1940, Síða 6
Aless/as Oratorium eftir Hándel. Flutt 2. jóladag í Fríkirkjunni í Reykjavík. Blandaður kór Tónlistarfélagsins og Hljómsveit Reykjavíkur. Stjórnandi Dr. V. v. Urbantschitsch. Einsöngvarar: Guðnín Ágústsdóttir (Sopran I), Divina Sigurðsson (Sopran II), Guðrún þorsteinsdóttir (Alt), Daníel þorkelsson (Tenor), Arnór Halldórsson (Bassi). Einleikarar á hljóðfœri: Páll ísólfsson (Orgel), Árni Kristjánsson (Cembalo), Björn Ólafsson (Fiðlusóló), Heinz Edelstein (Cellosóló), Karl O. Runólfsson (Trobasóló). Oratoríið Messías mun oftar vera leikið erlendis en flest önnur sam- bærileg verk, en hér á landi hefur það aldrei verið flutt áður — enda mjög umfangsmikið og gerir mjög miklar kröfur til söngvara, hljóð- færaleikara og stjórnanda. — Þetta verk hefur nú verið æft í fleiri mán- uði og hafa starfað að því um 100 manns — um 70 söngvarar og 30 hljóðfæraleikarar. Þetta oratorium er samið á ensku við texta, sem teknir eru úr Heilagri ritningu, og er flutt í sínum upp- þetta leyti voru Rússar í stríði við Japani og höfðu því nóg viðfangsefni heimafyrir, en frá þeirri stundu, að harðstjórinn var skotinn, sameinuð- ust Finnar, ungir sem gamlir, í bar- áttunni gegn erlendum yfirráðum og fyrir sjálfstæði Finnlands. runalega búningi. Það er lofsöngur um endurlausn Jesú Krists, en lýsir honum ekki eingöngu sem hinum líð- andi Frelsara, heldur einnig sem voldugum sigurvegara, — í anda Gamla testamentisins. — Oratoríið byrjar á spádómum um komu Krists, hins mikla endurlausnara. Þá kemur fæðing hans og líf og síðan píslar- sagan. Næst er Upprisan, Himnaför in, útsending postulanna og barátt an gegn heiðingjunum, sem endar með hinum alþekkta „Hallelúja- kór“, sem álitið er, að sé hámark, ekki aðeins þessa verks, heldur alls þess, sem Hándel hefur samið. Eft- ir Hallelújakórinn byrjar svo þátt- urinn um Dómsdag, sem er lokaþátt- ur verksins. Georg Friedrich Hándel er fæddur í Halle á Þýzkalandi 23. febrúar 1685. Það var með Hándel, eins og fleiri stórmenni á sviði tón- listarinnar, að strax á barnsaldri komu í ljós hjá honum miklir og ó- 134 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.