Útvarpstíðindi - 03.02.1941, Side 10

Útvarpstíðindi - 03.02.1941, Side 10
fiskar. Speglinum var þannig fyrir komið, að vatnsflöturinn speglaði sig í honum. 1 stofunni beið fjöldi marskálka og brúðarmeyja, og var svo til ætlazt, að brúðhjónaefnin kæmu þar inn, sitt um hvorar dyr. Nú var dyrunum hrundið upp, og brúðurin prúðbúin, og brúðguminn í skrautlegasta einkennisbúningi sín- um mættust þar á miðju gólfi. Brúðguminn kyssti hæversklega á hönd unnustu sinnar, og brúðmeyj- araar og marskálkarnir þyrptust nú utan um brúðhjónaefnin fögru. Vængjahurðin, er lá inn í „Hvíta salinn“ var nú opnuð, og blöstu þar við brúðarfótskarirnar, saumaðar silki og gulli. Bak við þær stóð prestur í skrúða sínum og út frá honum í hálfhring stóð skrautbúinn söfnuður, og var það heldra fólkið þar úr héraðinu. Carl Elfring leiddi nú brúðina inn að dyrum „Hvíta salsins"; en allt í einu nam hann staðar á þrösk- uldinum, og þreif til vasaklútsins. — Hann hafði fengið blóðnasir rétt í því, að athöfnin skyldi byrja. „Fyrirgefðu, ljúfan mín“, sagði kapteinninn við brúðina, „það eru að- eins blóðnasir, sem batna strax“. Að svo mæltu flýtti hann sér að öðuskelinni, til þess að dýfa ofan í hana hreinum vasaklút, er einn mar- skálkurinn rétti honum. Hann laut ofan að vatninu, en hrökk jafnharðan til baka. Á spegil- sléttum vatnsfletinum sást mynd af grannvaxinni og tígulegri konu. — Hún var alvarleg sýnum, og klædd í brúðarskraut, svo sem tíðkaðist hjá bændafólki í Noregi. Slíkri fegurð, sem mynd þessi bar, hefði enginn málari getað náð. — Bláu augun, gula hárið, og í stuttu máli öll þessi fagra, unglega mynd var sem lifandi. Menn hrópuðu upp yfir sig af að- dáun, og við köll þeirra varð Elfring litið upp. Og í speglinum stóra gat þá að líta myndina fögru, sem ummynduð væri. Allir litu við til þess að koma auga á þá konu, sem myndin væri af; en hana var hvergi að sjá. Þessi fagra mynd vai myndin af Kristínu Törvestad. Brúðguminn i’ak upp hljóð, og hné aftur á bak í fangið á einum mar- skálknum. Hvíti kjóllinn brúðinnar litaðist blóði. Ungi kapteinninn hafði fengið blóðspýju og var örendur í sömu svipan. Það var sem hulu drægi yfir mynd- ina í speglinum, og jafnskjótt og Carl Elfring gaf upp öndina, hvarf hún með öllu. Sögu þessa hefur sonur eins mar- skálksins sagt, og hefur faðir hans, R.... ofursti sagt honum frá þess- um atburðum. En í kirkjugarði einum í Noregi stendur steinkross á leiði, og er letr- að á hann: Kristín Törvested. Fædd 18. febr. 1794. Dáin 6. jan 1816 Og brúðkaupsdagurinn, sem getið var um, var einmitt sami dagurinn — 6. janúar 1816. VIZKUKORN: Einungis í hendi hins göfuga er gullið góðmálmur. pegar hinn -fátæki kemur til nirfilsins, verður hann þess áskynja, að hann hefur þar fyrir sér mann, sem er margfalt fátækari en hann sjálfur. pögnin er harðasti dómurinn, en það lítur svo út, sem flestu kvenfólki sé ó- kunnugt um það. 242 tTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.