Útvarpstíðindi - 03.02.1941, Qupperneq 11

Útvarpstíðindi - 03.02.1941, Qupperneq 11
Pálmi Hannesson: Um viðlög. Pálmi Hannesson flutti erindi um við- lög á kvöldvökunni 22. jan. Erindi þetta var injög glœsilegt að efni og búningi og um flutninginn cr ekki að tala. Pálmi fiytur manna bezt mál sitt, áheyrilega og fallega. Hr. P. H. hefur góðfúslega leyft Útv.t. að birta noklcra kafla úr þessu erindi. Egill Skallagrimsson kallar kveðskap sinn „máli laufgað mœrðar timbur". Vissulega má líkja liinum forna skáld- skap við stóran skóg. þar getur að líta furðulega sterka stofna og safaríkt, sí- grœnt lim, sem teygist upp í svala lieið- ríkju norrœna vitsmuna. En þar lesa fáir blóm og allra sízt rauð. Og vist eru mörg trén merglaus og fúin, aðeins form- ið eitt. En niðri í skógsverðinum — í skugga hinna hávöxnu meiða, — leynist kynlegur villigróður. það er kveðskapur alþýðunnar: dansar og draumljóð. Dans hefur sennilega tíðkazt með kyn- stofni vorum frá örófi alda. það er hátt- ur frumstæðra manna, að laða hreyfing- ar sínar eftir hrynjandi hljóði. En ekki fer sögum af sliku hér fyrri en á 11 öld. Lengi framan af hét danskvæðið dans, eins og sézt af sögninni um þórð Andrés- son. Kvæðin voru kveðin cða slegin á hijóðfæri, en eftir hljóðfallinu var svo dansinn stiginn, þegar svo bar undir, einkum á skemmtisamkomum þeim, sem nefndar voru vökur eða gleðir. Flest er ókunnugt um hina elztu dansa, bæði kvæðin sjálf og eins hitt, liversu stigið var. — þeir uxu upp með alþýð- unni og voru því lítt í letur færðir. Á Sturlungaöld hækkar hagur dans- anna. Ilöfðingjar og jafnvel kennilýður- inn taka að hafa þá um hönd. Erlend áhrif flœða þá yfir landið, meðal annars margir dansar, og liið hátimbruðu hof dróttkvæðannn verða skáldunum of Þröng. Að vísu er margt móðu liulið um aldur dnnskvœðanna, en það hygg ég, að 13. öldinni, liinu furðulega gróðurskeiði islenzkrar skáldmenningar, liafi þau náð mestum þroska og fegurð. Flest danskvæði eiga sammerkt í því, að í þeim eru v i ð 1 ö g, sérstakar hend- ingar, sem endurteknar eru í hverju er- indi. í Ólafi liljurós er viðlagið: „Villir hann, stillir liann. Blíðan lagði byrinn undan björgunum íram". Allir sungu við- lögin og lærðu þau. þess vegna geymdust þau, þó að kvæðin sjálf týndust, og bárust frá manni til manns, kyni til kyns. þannig lifðu þau lífi sínu, líkt og flakkandi sálir eða reikult og rótlaust þang. Öll eru þau stutt, en fela þó oftast i sér heillega og skáldlega hugsun, stundum baugabrot gamalla sagna eða gleymdra kvæða, stundum málshátt eða mynd. — Býsna oft eru þau ofin úr mynd af nátt- úrunni og einhverri lífsreynslu eða spak- mæli, til dæmis þessi: 1. Vatnið rennur af háum fjöllum eftir hvössu grjóti. Illt er að leggja ást við þann, sem enga kann á móti, — og 2. Framar eftir firðinum sigla fagrar fleyr. — Sá er enginn glaður, sem eftir annan þreyr. Vafalaust eru mörg viðlögin útlend í ættir fram. En þjóðin hefur nært þau á hug sínum og hjartablóði, og landið léð þeim ljós sitt og skugga. þess vegna eru þau, ef til vill, íslenzkust allra ljóða, þátt fyrir hinn suðrrona blæ, sem andar í ýmsum þeirra. Og mörg eru þau furðu- lega fíngerð og tær, líkt og vetrarkvíði um sumarnótt, til dæmis: 1. Eitt sinn fór ég yfir Rín á laufblaði einnar lilju, lítil var ferjan mín, — eða 2. Dunar lítt þótt dansi liin livíta dúfan ein, —eða 3. Stuttir cru morgnar í Möðrudal, þar eru dagmál þá dagar. Við skulum nú hugsa okkur, hlustend- ur góðir, að við séum komin á gleði eða vikivaka, annað hvort i álfheimum eða mannn. Kertaljós brennur i .stofunni, en myrkur úti fyrir. Fólkið keraur inn, ungt fólk i annarlegum búningum, en með æskuglampa allra tíma í augum sér. For- stöðumaðurinn lieldur á langspili, geng- ur fram, lýtur oklcur og kveður: Framh. á bls. 251. ÚTVARPSTlÐINDI 243

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.