Útvarpstíðindi - 03.02.1941, Blaðsíða 18

Útvarpstíðindi - 03.02.1941, Blaðsíða 18
örfá orð um dagskrána. Kvöldvöku Árna frá Múla var víða beðið með óþreyju, sérstaklega af söng- vinum, enda urðu þeir ekki fyrir von- brigðum. — Upplestur Lárusar Pálssonar leikara var prýðilegur, sérstaklega „Dauði Ásu“. Kvœði Tómasar nutu sín og vel, enda væri það móðgun bæði við Tómas og ljóðavini að láta lélega flytj- endur túlka kvæði hans. Ekki var þó lestur þess lýtalaus. Sérstaklega skjátl- aðist Lárusi mjög hrapallega í annarri ljóðlínu síðustu vísunnar í kvæðinu um konuna með hundinn. En hið gleðilegasta af öllu, sem Árni bauð okkur upp á þetta kvöld, var 'rödd hans sjálfs. það er sárt að hafa Árna frá Múla þarna sífellt á næstu grösum við útvarpið og heyra hann þó ekki syngja nema einu sinni á hverjum tveim- ur árum. Er ckki hægt að setja mann- inum svo harða úrslitakosti, að hann verði að ganga að þeim og syngja dálítið oftar fyrir okkur? Kaldalónskvöldið var ánægjulégt á að hlýða að undanteknum söng Kristjáns Kristjánssonar. (Kr. Kr. mun hafa verið iila fyrir kallaður þetta kvöld, því að venjulega líkar söngur hans vel, enda kann hann meira til söngs en sumir aðr- ir, sem láta til sín heyra hér í útvarpinu. Ritstj.). Unga tónskáldið, Hallgrímur Helgason, kom þar fram í nýju hlutverki: Prýðilegur stílisti og áheyrilegur í flutn- ingi. Erindið var fyrirtak og mætti Hall- grímur oftar láta Ijós sitt skína. Túlkun hans á músik er bæði skemmtileg og aðgengileg fyrir alþýðu manna. — Söng- ur dómkirkjukórsins var smekklegur og fallegur. Frú Guðrún Ágústsdóttir skilaði einsöngshlutverki sínu með prýði. Báðir þessir iiðir voru Kaldalóns til verðskuld- aðs sóma. Hvaða manneskjur cru áttmenningar þeir, sem sungu á kvöldvökunni í gær- kveldi? Ekki get ég með góðri samvizku óskað eftir slikum söng í bráð i útvarp- inu. Raddimar eru lélegar (bössunum teflt fram í sífellu, og eru þeir þó lítt skárri yfirröddunum) söngurinn laus i reipunum og undirleikur alltof sterkur. Hlustandi i Dalasýslu. Góður upplesari. — Pétur Pétursson bankaritari hefur tvisvar sinnum lesið upp í útvarp svo ég hef heyrt. Pétur hef- ur mjög skýra, þróttmikla og þægilega rödd og les mjög áheyrilega. Hann ætti að lcsa oftar, en hann mætti gjarna lesa eftir fleiri höfunda en Stcfan Zweig, sem að visu er ágætis höfundur. En Pétur hefur nefnilega i bæði skiptin lesið upp úr sömu bókinni og er það nýútkomin bók, sem flestir bókavinir hafa þegar les- ið. Ég hef heyrt Pétur lesa gamansamar smásögur á nokkrum skemmtisamkom- um og fundizt honum takazt mjög vel. Við höfum ekki of mikið af smásögu- upplesurúm í útvarpinu, svo að það ætti að vera rúm fyrir Pétur á dagskránni ánnað slágið. J. Ljóðskálakvöldið 19. jan. Kvæði Einars Bachmanns um bóndann og hundinn þótti mér að mörgu leyti ágætt, og flutningur hans var í bctra lagi. Hugrún, eða Fiiippia Kristjánsdóttir, þótti mér lesa ver, raddbreytingin ekki rétt, ekki laust við að hún væri mjó- róma. „Fótatak" þótti mér bezta kvæðið hennar. Yfirleitt vandar liún sig ekki nógu mikið. Guðrún frá Brautarholti flýtti sér allt of mikið. þulumar voru beztar. Kvæðið um Finnland ort af meiri hita en list. Guðrún frá Fagraskógi var bezt kven- anna. Ljóðræn mýkt er hezta einkennið á kvœðum hennar, en liún les ekki nógu vcl. Kjartan frá Mosfelli har af hinum. Hann yrkir eins gallaiaust og Guðn'in, en er persónulegri og skemmtilegri og hann las ágætlega. K. F. ...... Hvers vegna er verið að kalla þetta fóik ung ljóðskáld? öll múnu þau sem þarna lásu, vera komin langt á fer- tugsaldur (þau yngstu) og hin um fer- tugt og líklega þar yfir. þetta fólk hefur undanfarin 10—15 ár birt kvæði sín í blöðum og timaritum og a. m. k. helm- ingur þess gefið út ljóðabækur, og sumir fleiri en eina. Á að skipta skáldunum í tvo hópa, gömul skáld og ung skáld? Spurull. 250 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.