Útvarpstíðindi - 10.05.1941, Side 2
Frú ein í Vestmannaeyjum œtlaði til
Reykjavíkur.
„pið fáið ágætis veður suður núna“,
sagði maður við hana á bryggjunni.
„Ég á það sannarlega skilið", sagði frú-
in. „Ég fer ekki svo oft til Reykjavíkur".
Um daginn vildi það slys til, þegar
flugvélin „Örninn" ætlaði að hefja sig til
flugs á flugvellinum í Reykjavík, að hún
náði sér ekki nógu hátt á loft og rakst
á einn hermannaskálann og gjöreyðilagð-
ist. í flugvélinni var, auk flugmannsins,
stúlka, sem ætlaði til Akureyrar. Sakaði
þau hvorug og var það talið undravert.
það fyrsta, sem stúlkan sagði, er hún
hafði skriðið út úr flugvélarbrakinu, var:
„Ætli ég geti ekki komizt norður með
„Haferninum“.“ (Hin ísl. flugvélin). Hún
hafði ekki misst móðinn.
Tvær stúlkur gengu eftir götu í Reykja-
vik að kvöldlagi í vetur. Bretar tveir véku
sér að þeim og buðu gott kvöld. Önnur
stúlkan varð fyrir svörum: „Are you
gentlemen?11
ÚTVARPSTÍÐINDI
koma út vikulega að vetrinum, 28 tölubl.
16 blaSsíSur hvert, og hálfsmánaiSarlega
atS sumrinu, 8 síSur í senn. Árgangurinn
kostar lcr. 7,50 til áskrifenda og greitSist
fyrirfram. í lausasölu kostar heftið 35 a.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
GUNNAR M. MAGNÚSS,
Veg-amótum, Seltjarnarnesi
JÓN ÚR VÖR,
Ásvallag. 6.
AfgreiBsla á Laugavegi 18. — Simi 5046.
éigefnndlt H/f. Hlustandliui.
ísafoldarprentsmiSja h/f.
Bretunum varð orðfátt, en stúlkurnar
héldu leið sína óáreittar.
Eftirfarandi er haft eftir gamalli konu
á Norðurlandi: „Ja, er það ekki eins og
ég segi, þeir snúa öllu niður, sem upp á
að snúa. Lítið t. d. á alla viðhöfnina og
ósköpin og gauraganginn, þegar eitthvert
stórmennið deyr, og því er stungið ofan
í gröfina; en þegar slíkt stórmenni fæð-
ist, þá er ekki svo mikið, sem að köttur
gelti.“
Vísa.
Ást er lifsins æðsta lán,
angurs þerrir tárahregg.
Hver sem lifir ástar án,
er auðþekktur á hár og skegg.
örn Arnarson.
Orðsendinjj til úivarpsnotenda og
úlsölumanna viðfækja.
Að gefnu tilefni, eru allir þeir útvarpsnotendur úti á landi, sem
senda viðtæki til Viðgerðarstofu útvarpsins áminntir um, að
láta ávallt fylgja. viðtækjunum sjálfum, nafn og he/m-
ilisfang eiganda og sendanda. Ennfremur sem gleggsta
lýsíngu á bilun viðtækisins. Greiðir það mjög fyrir fljótri og
ábyggilegri afgreiðslu.
Viðgerðarstofa útvarpsins
426
ÚTVARPSTÍÐINDl