Útvarpstíðindi - 20.10.1941, Page 11
Helgi Hjörvar
Hjörvar er líka skáldsagnahöfundur
Helgi Hjörvar les nýja frumsamda
sögu eftir sig sunnudaginn 26. okt.
Nefnist sagan „Konungsbrúður".
— Eruð þér tekinn til að skrifa
skáldsögur á ný? spyrjum vér.
— Ekki er svo, að heitið geti. En
fyrir nokkrum árum kom mér þetta
söguefni í hug og gerði þá drög að
henni. En í sumar kom það allt í einu
að mér, að ég fullgerði þessa sögu.
Þetta verður eins og stutt útvarps-
saga í tvennu lagi.
— Ætlið þér ekki að gefa söguna
út?
— Nei, alls ekki að sinni.
— En þá eitthvað annað ? Eða haf-
ið þér ekki fleira til útgáfu?
— Ónei, ekki heldur að sinni. Ég
á drög að ýmsu.
— Efni þessarar sögu er úr Heims-
kringlu ?
— Já. Hún er gerð út af atburði,
sem Ólafs saga Tryggvasonar segir
frá, eftir víg Járnskeggja:
„ólafur konungur gerði stefnulag
frændum Járnskeggja og bauð þeim
bætur, en þar voru til svara margir
göfgir menn. Járnskeggi átti dóttur,
er Guðrún er nefnd: ,kom það að lykt-
um í sáttmál þeirra, að Ólafur kon-
ungur skyldi fá Guðrúnar. En er
brullaupsstefna sú kom, þá gengu þau
í eina rekkju, Ólafur konungur og
Guðrún. En hina fyrstu nótt, er þau
lágu bæði samt, þegar konungur var
sofnaður, þá brá hún knífi og vildi
leggja á honum. En er konungur varð
þessa var, tók hann knífinn frá henni
og stóð upp úr hvílunni og gekk til
manna sinna og segir, hvað orðið
hafði. Tók Guðrún þá og klæði sín og
allir þeir menn, er henni höfðu þang-
að fylgt. Fóru þau í brott leið sína,
og kom Guðrún ekki síðan í sama
rekkju Ólafi konungi".
Út af þessu efni er sagan gerð.
— Þetta er þá ástarsaga?
— Já, að vísu fyrst og fremst;
öllu þó heldur bæði ást og pólitík. En
aðdragandinn að brúðkaupsnóttinni
er sá, sem í Heimskringlu segir
glöggt frá, að Járnskeggi er höfðingi
Þrænda í mótstöðunni gegn kristni-
boði Ólafs, og beygir konung með
forystu sinni og lýðfylgi. En Ólafur
svíkur hann, og lætur myrða Jái’n-
skeggja í hofsgriðum, en eftir það
brýtur hann mótstöðuna niður.
'Frændur Erlings Skjálgssonar
höfðu litlu áður gert Ólafi Tryggva-
syni þann kost, að hann gæfi Erlingi
Ástríði systur sína, og skyldu þeir þá
fylgja honum. Engin ástæða er til að
ætla, að Ólafur konungur hafi verið
mjög fús á mægðir við blótmenn
Þrænda, og ég hef lagt þann skiln-
ing í frásögn Heimskringlu, að allt
annað hafi valdið skilnaði þeirra kon-
ÚTV ARPSTÍÐINDI
11