Útvarpstíðindi - 12.12.1941, Page 31

Útvarpstíðindi - 12.12.1941, Page 31
lofi. En Ííklega er það mest vegna þess, aéi menn hafa ekki að fullu gert sér það ljóst, hver aðall þeirra er. Flest skáld okkar, líka ljóðskáldin, eru fyrst og fremst sjáendur. Þau hafa aðeins mis- munandi næmt auga. En Guðfinna er fyrst og fremst heyrandi. Það er aðall hennar sem skálds, hve hlustnæm hún er. Fyrsta kvæði hennar, sem eftirtekt vakti, er kvæðið Hófatak. Ég hef hvergi séð eða heyrt gerða grein fyrir því, hvað sérstaklega snart menn í því kvæði, en eg hygg, að það hafi verið, hve kvæðið lýsti góðri heyrn, og hve vel það túlkaði það, sem skáldið heyrði. Það var líka léttara til skilnings að þessu leyti en flest önnur kvæði Guðfinnu, það segir svo skýrt til um efni sitt. Það hefst umsvifalaust með þessum orðum: Fáksins dunandi hófahljóð á hrynjandi guðlegs máls. og endar á þenna veg: Sem höfugur niður um hljóða jörð hófaslátturinn fer. En ef til vill er heyrn Guðfinnu þó allra næm- ust í heiðakyrrðinni ofan við gamla bæinn henn- ar á Hömrum: Þei, þei, þei, þei. Hefur þögnin mál? I þeim röddum skiptast spurn og svör. Frá heiðabrjóstinu líða ljóð, sem lögð eru á ilmblæsins fögru vör, og blóðbergsins eldheita anganstef berst ómhreint að drottins fótaskör. en hæversk og kyrrlát kaldavermsl sín kliðmæli hefja, fagurstreym. Guðfinna vill lýsa því, sem ,,á að syngjast, en ekkert mál á orð til að tákna rétt“. Og hún hefur svo að furðu gegnir orð til að tákna það rétt. Arnór Sigurjónsson. Vor sólskinaár, ljóð eftir Kjartan Gísla- son jrá Mosfelli. Reykjavík 1941. Bóka- útgáfa Jens Guðbjörnssonar. Kjartan J. Gíslason las kvæði á Ijóðskálda- kvöldinu sl. vetur og vakti almenna athygli fyrir léttan og hnittinn tón. Hann var reyndar áður kunnur af tveimur ljóðabókum, en með þessari bók mun hann ná verðugri hylli ljóðaunnenda. j UM TÚNLIST j Karlakórinn ,,Fóstbrœður" söng 1. desember s. 1. lög úr 25 ára afmælis-söngskrá sinni. Fyrst sungu þeir ,,Fóstbræðrasyrpu“, er Emil Thoroddsen hafði raddsett og gefið kórnum í afmælisgjöf. 1 syrpunni eru 8 af þekktustu ís- lenzkum þjóðlögum, og eru þau gamalkunn frá fyrri söngskrám kórsins. Þriðja lagið í syrpunni, ,,Eg veit eina baugalínu“, var tekið öðrum tök- um en venja er til. Fyrri hluti lagsins var sung- inn sterkt, og er það andstætt því venjulega. Lagið hefði verið betur sungið allt veikt. Gunnar Möller annaðist undirleik við syrp- una, og fórst honum það vel úr hendi. Auk syrpunnar sungu þeir fjögur Norðurlanda- lög, og loks lag Sigfúsar Einarssonar ,,Þú álfu vorrar yngsta land“. Söngur ,,Fóstbræðra“ er mjög vandaður. Styrk- leikabreytingar nákvæmar og samstilling ágæt — miklu betri en ætla mætti eftir söng þeirra í útvarpið. Kórinn ræður yfir miklum þrótti, en notar hann hóflega. MiÓvikudagskvöldiÓ 3. desember kváðu þeir Júlíus Geirmundsson og Jón Lárusson úr Núma- rímum og Göngu-Hrólfsrímum. Rímnakveðskapur heyrist sjaldan nú orðið, enda fækkar þeim óðum, sem hafa gaman af rímum. Margir eru þeirrar skoðunar, að ekki ætti að kveða rímur í útvarpið, vegna þess að útlend- ingar kunni ekki að meta þær, og álíti þær villi- mannasöng. Þetta er nú heldur ótrúlegt, enda ástæðulaust að taka mark á því. Oft heyrist svip- aður þjóðlegur söngur frá erlendum útvarpsstöðv- um, t. d. frá Marokkó, og engum dettur í hug að kalla það villimannasöng. Þeir Júlíus og Jón eru báðir góðir kvæðamenn og halda furðuvel tónhæðinni — en mikið má þrek þeirra vera, ef þeir endast til að kveða langar rímur í lotu með slíkri raddbeitingu. 3./12. 1941. P. K. P. hAÐ VAR Á HÓTEL BORG. Tveir menn, Islendingur og Breti, komu jafn snemma að borði stúlku einnar og buðu lienni f dans. Hún tók boði útlendingsins, en vék þessum orðum að íslendingnum, sem hún þekkti: ,,Ég fékk að sitja fyrir strfð, nú getur þú setið". ÚTVARPSTÍÐINDI 143

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.