Útvarpstíðindi - 02.06.1947, Side 5
ÚTVARPSTIÐINDI
221
SEGIR FINNBDRG ÚRNIÍlLFSDáTTIR TILKYNNINGAÞULUR
„HVER A ÓMÞÝÐU og viðfelldnu
röddina, sem við heyrum í tilkynn-
ingatímum útvarpsins á kvöldin?“
Þannig hafa ótal útvarpshlustend-
un spurt. — Og raunverulega er
skömm að því, að Útvarpstíðindi
skuli aldrei hafa ljóstað þessu upp.
Eigandi þessarar raddar er Kinn-
borg Örnólfsdóttir, en hún hefur oft
skemmt útvarpshlustendum með upp-
lesti'i á ýmsum dagskrárliðum, og
einnig hefur hún farið með hlutverk
í nokkrum leikritum, sem flutt hafa
verið í útvarpið.
Útvarpstíðindi sneru sér nýlega til
Finnborgar og báðu hana að segja
hlustendum eitthvað um sjálfa sig og
starf hennar hjá útvarpinu. En hún
færðist heldur undan því; — kvaðst
ekkert markvert hafa að segja, og
helzt vilja vera „óþekkta röddin",
sem þyldi tilkynningarnar í hljóð-
nemann.
Vér tjáðum henni, að nú kæmist
hún ekki lengur upp með slíkt, því
að hlustendur heimtuðu, að fá að
vita eitthvað um hana.
„Jæja, þá er víst bezt að leysa frá
skjóðunni“, sagði Finnborg brosandi.
„Ég er fædd á Súgandafirði, og er
28 ára. Faðir minn er örnólfur
Valdimarsson, útgerðarmaður. Móðir
mín var Finnborg Kristjánsdóttir, en
hún er látin.
Ég hef lesið tilkynningar fyrir út-
varpið frá því 1. apríl 1946. Fyrst
las ég þær á móti Guðbjörgu, en frá
Finnborg Örnólfsdóttir.
því í september í haust hef ég lesið
þær ein.
Mér líkar starfið prýðilega", sagði
hún ennfremur. „Annars er stund-
um töluverður vandi að lesa tilkynn-
ingarnar, og maður hlýtur að hafa
dálitla ábyrgðartilfinningu við starf-
ið. Þetta er efni, sem greiddir hafa
verið fyrir ærnir peningar, og það
er afar leiðinlegt, ef maður grípur
sjálfa sig í því, að hafa lesið tilkynn-
ingu illa eða farið rangt með efni
hennar.