Útvarpstíðindi - 02.06.1947, Qupperneq 19
ÚTVARPSTÍÐINDI
235
og Gunnþórunni. — Mér finnst, að þítt-
um, sem skotið er inn í dagskrána, eins
og Passíusálmum og lýsingum af stál-
þrœði, aetti að auglýsa eftir hinni fyrir-
fram auglýstu dagskrá, en ekki stinga
þeim inn á milli annarra dagskrárliða. —
Pá er það jazzþátturinn. Hann finnst
mér, þótt ég sé hrifinn af jazzi, ekki
nógu fjðlhreyttur. Finnst mér, að ætti að
spila plötur frá öðrum löndum en Amer-
íku, sérstaklega Englandi. Annars finnst
mér ágætt, hvernig Jón kynnir hljóm-
sveitirnar. — Svo eru það danslögin.
Það er nú meiri „jazzdellan11, sem kom-
in er í „harmonikkuelskandi“ sveitafólk.
Það er að lala um það, að það eigi að
leika fleiri harmonikkulög í danslögun- ■
um, af því að jazzinn hafi eigin tíma.
Pað ætti að lilusta á eftir seinni fréttum
á miðvikudögum, ef það er þá ekki verið
að útvarpa af stálþræði. Annars finnast
mér danslögin ekkert sérlega góð. Það
er alltof mikið af gamaldags tangóum og
völsum, spiluðum af dönskum, sænskum
eða spánskargentiiskum hljómsveitum. —
Harmonikkulög frá öðrum löndum en
Norðurlöndum eins og þau, sem leikin
eru af úreltum spilurum eins og Gellin
og Borgström, hef ég annars ekkert út
á að setja. Annars eru þeir, sem þykjast
hafa yndi af harmonikkulögum, svo
bjánalegir, að ef þeir bara heyra í
harmonikku, hvort sem það er jazz eða
ekki (sem það er þó oft), þá komast þeir
allir á loft, svo að það er þá bara hljóð-
færið, en ekki lögin, sem það fer eftir.
Mér finnst, að eigi að útvarpa danslög-
um frá dansleikjum, sérstaklega þar sem
hljómsveit Björns R. Einarssonar spilar.
— Stálþráðurinn finnst inér vera ágætur.
Ætti að taka fleira upp á hann en lýs-
ingar hf íþróttakeppnum. Mætti taka ým-
iskonar hljómleika og skemmtanir upp
á hann. Ætti það að vera gert, þegar Joe
Daniels kemur hingað. — Að lokum vil
ég svo sakna þáttarins „Eög og létt hjal“,
sérstaklega eins og hann var, þegar Ein-
ar Pálsson var með hann, og stinga upp
á því, a ðtekinn verði upp óskalagaþátt-
ur, sem væri svona 1 tíma tvisvar í
viku“.
UM ÝMISLEGT EFNI.
Úr Stíflu, norðast í Skagafjarðarsýslu,
er skrifað á sumardaginn fyrsta: „Það
hefur oft verið talað um það i Otvarps-
tíðindum, að sem flestir sendu linur í
„Raddir lilustenda“, og ætti svo að vera.
Ég hef að vísu litlu þar við að bæta, sem
áður hefur verið umtalað viðvíkjandi
dagskrá útvarpsins, nema að mér finnst,
að það, sem flestir eru sammála um í
„Röddum hlustenda“ þurfi að breyta og
bæta. — Það eru flestar raddir, sem
þrá meira af harmonikkulögum. Því þá
ekki að spila meira af þeim? — Um veð-
urfréttir vil ég segja þetta: Það er ein-
dregin ósk okkar hér, að í sumar séu
veðurfregnir lesnar á morgnana kl. 9 eða
rúmlega það. Miðdegið kl. 15.30—16.
Þetta er sá tími, sem notaður er almennt
til hressingar, og gætu þá flestir notið
þeirra, bæði í borg, bæ og sveitum þessa
lands. — Mig langar til að vita hvernig
veðurfar það er, þegar sagt er, að sé
snjókoma en ágætt skygni. Ég er alveg
sammála „Röddum hlustenda", að láta
þá inenn ekki koma að hljóðnemanum,
sem að einhverju leyti hafa ekki góðan
framburð, eða tala of lágt, eins og oft
hefur komið fyrir, og vil ég í því sam-
bandi minnast á suma leikarana; það eru
oft hreinustu vandræði að hlusta á þá,
og ættu þeir þó að vera mörgum öðrum
fremri með flutning á efni, en svo virð-
ist ekki vera. Þetta finnst nú sumum
ináske of mælt, en ég er ofurlítið van-
ur upplestri, og hef oft leikið, og þess
vegne innst mér þörf á gagnrýni. — Ég
get líka bætt þvi við, að aldrei hef ég
gengið í skóla erlendis.
Hvernig stendur á því, að ekki er
hægt að ljúka innlendum fréttum á
venjulegum fréttatíma, og að fréttir skuli
oft þurfa að bíða seinni frétlatíina? —
Þetta finnst mér, að ætti ekki að koina
fyrir. Það á að hafa fréttatímann það
rúman, að liægt sé að ljúka þeim; og
oft, þegar lestri er hætt, koma hljóm-
leikar, miður skemmtilegir. — Pétur er
að allra dómi bezti þulurinn. Stúlkurn-
ar, sem lesa tilkynningar, eru mjög góð-
ar, svo er ég farinn að venjast Jóni vel,
þótt ekki væri álitlegur í fyrstu.