Útvarpstíðindi - 02.06.1947, Síða 20
I
VIRKIÐ I NORÐRI
*
Hernám Islands
EFTIR GUNNAR M. MAGNÚSS
Bók, sem vekja mun alþjóðar athygli, er komin í bókaverzlanir.
f ritinu er skýrt frá flestu því, sem lýsir ástandstimabilinu. Bindið nær yfir fyrsta árið,
að undanteknum annálunum, sem ná vfir allt hcrnámstíniubilið. Á ýmsum stöðum er
brugðið upp stuttum frásögnum af daglegum viðburðum og einstökuin fyrirbærum, er mörgu
fremur varpa ljósi yfir hið almcnna líf i landinu á tvíbýlisárunum. Heimildir um sögulcga
viðburði eru í mörgum tilfelluin sóttar persónulega til þeirra inanna, er við sögu korna. Þá
eru og heimildir fengnar frá blaðamönnum, starfsmönnum opinberra fyrirtækja og öðrum
einstaklingum. Sumt er sótt í skýrslur, bréf og ritgerðir.
Myndirnar i ritinu hafa fæstar komið áður fyrir almenning6sjónir.
f bókinni eru margir stóratliyglisverðir kaflar og fjöldi fólks, sem kemur við sögu, og
mun þó verða meira í næsta bindi.
*
Bókaverzlun Isafoldar
og útibúin Laugaveg 12 og Leifsgötu 4
i