Bankablaðið - 01.10.1937, Blaðsíða 7
BANICABLAÐIÐ
39
frá því skipið kom í höfn, en með allt
dótið meðferðis.
Guðmundur, kaupmaður, Jónsson (í
Brynju), sem var samskipa mér út, var
mér til mikillar aðstoðar í þessu basli
og einnig tvo næstu klukkutímana, því
auðvitað var ég eins og hver önnur
sauðkind í fyrsta skipti í þessari stóru
borg.
Á þessum tíma voru öll gistihús
borgarinnar yfirfull af fólki, vegna þá
í hönd farandi ríkisstjórnarafmælis
konungs vors. En Guðmundur, sem er
gamal kunnugur í borginni, fékk samt
herbergi eftir rúmlega klukkutíma bíl-
akstur fram og aftur og það á góðum
stað, að hann sagði, en það var í Bad-
stuestræte á einhverju „Mission“ gisti-
húsi, en það er skammt frá Ráðhústorg-
inu.
Ég var bæði orðinn þreyttur og svang.
ur og var því mjög ánægður að kom-
ast með Guðmundi í húsaskjól, hvíla,
borða og hugsa um það sem næst lagi
fyrir, en það var að komast sem fyrst
til Stokkhólms. Um kvöldið kl. 7 átti
lest að fara til Svíþjóðar og koma til
Stokkhólms kl. 8—9 að morgni. Þetta
var það farartæki, sem ég bjóst við, að
ég yrði neyddur til að taka, var það
þó alls ekki ákjósanlegt, því að ég vissi
að 2. dagur mótsins átti að byrja kl.
10 daginn eftir og sá ég það í hendi,
að ekki yrðu tök á því að koma mér
fyrir, hafa fataskipti og átta mig á
hlutunum á 2 tímum, þó ég kæmist á
ákvörðunarstað kl. 8 að morgni, auk
þess sem ég gat búist við, að mér
'murídi ekki verða svefnsamt fyrstu
nóttina í járnbrautarvagni. Veitti mér
þó ekki af svefni næstu nótt, þar sem
ég hafði ekkert scíið nóttina áður,
Það
er engirm
að H
reinsvorur eru
efi
beztai
Kristalsápa
F’vottadufi
Góltáburður
Skóáburður
Ræstiduft
Reimvax
Stangasápa
Handsápur
Húsgagnaáburður
Fægilögur
Kerti
H.f. Hreinn Reykjavík