Bankablaðið - 01.04.1953, Blaðsíða 16

Bankablaðið - 01.04.1953, Blaðsíða 16
að bera fram tillögu unr allsherjarlauna- lækkun. Félagsmenn voru kvattir til að standa saman, og bankamenn almennt þjöppuðu sér saman og mynduðu samtök. Þar samþ. að athuga málið í samráði við Starfsmannafélag Útvegsbankans og að vinna að stofnun Sambands ísl. banka- manna. ÁRIÐ 1935: Miðvikudaginn 30 janúar er skotið á fundi og látin frani fara prófkosn- ing um menn af hálfu félagsins í stjórn Sambands ísl. bankamanna. Yfirgnæfandi meirihluti fundarmanna samþykkti Harald Jóhannessen senr forsetaefni og þá F. A. Andersen og Einvarð Hallvarðsson. Þá var haldinn fundur um fyrirlruguð hátíðahöld á 50 ára afmæli bankans. Á þeim fundi vor kosin nefnd til að lrrinda í framkvæmd nryndasafni af starfsmönnunr bankans, á- samt skýrslum um störf þeirra. Þá var á fundi 3. október rætt um stöðuveitingar r Útvegsbankanum, en tilmæli höfðu borist unr, að mál þetta væri rætt frá stjórn Samb. ísl. bankamanna og var gerð eftirfarandi samþykkt: „í tilefni af skýrslu þeirri, frá starfs- mannafélagi Útvegsbanka íslands h. f. sem lesin var upp á þessum fundi viðvíkj- andi stöðuveitingum í bankanum, lýsir fundur Félags starfsmanna Landsbanka íslands fyllstu vanþóknun sinni á meðferð Útvegsbankastjórnarinnar á starfsmönnum bankans í máli þessu og skorar á stjórn Sambands ísl. bankamanna, að standa óskift með Starfsmannafélagi Útvegsbanka íslands h. f. gegn jafn augljósu ranglæti.“ Staða sú er hér um ræðir er Útibússtjóra- staða Útvegsbanka íslands h. f. á Akureyri. Þá hafði F.S.L.Í. borist myndarleg pen- ingagjöf frá Landsbankanum til stofnunar námssjóðs í tilefni af 50 ára afmæli bank- ans, og var á þessum fundi skipuð nefnd til að sernja reglugerð fyrir sjóð þennann. 6 BAN KABLAÐ IÐ

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.