Bankablaðið - 01.04.1953, Qupperneq 17

Bankablaðið - 01.04.1953, Qupperneq 17
ÁRIÐ 1936: Samþykkt Reglugerð fyrir Námssjóð starfsmanna Landsbanka íslands, sem stofnaður var með peningagjöf þeirri til félagsins, sem fyrr er getið. Allmiklar umræður urðu um reglur sjóðsins og fyrir- komulag og vildu félagsmenn veg sjóðsins sem mestan. Fyrstu stjórn sjóðsins skipuðu: Þorgils Ingvarsson, Þorsteinn Jónsson, Franz A. Andersen, Jóhanna Þórðardóttir og Haraldur Jóhannessen. Þá var á þessu ári lagt fram erindi frá Sambandi ísl. bankamanna „um hvort að starfsmannafélög bankanna óskuðu eftir, að sambandið beytti sér fyrir að reisa sum- arskála „Bankasel" í grend við Reykjavík til afnota fyrir sambandsfélaga." Síðari hluta maí mánaðar fór fram almenn at- kvæðagreiðsla um málið meðal félags- manna og greiddu 30 atkvæði með málinu, en 14 á móti, og 6 seðlar voru auðir. Var þetta skálamál síðar mikið rætt í félaginu og sumarskálasjóður stofnaður innan félags- ins. Þá voru Alþýðutryggingarlögin nokkuð til urnræðu, en opinberir starfsmenn og þeir aðilar sem höfðu lífeyrissjóði var gert að skyldu að greiða tillög til hinna nýju trygg- ingasjóða. Var hér um augljóst ranglæti að ræða, sem fékkst leiðrétt að nokkru eftir langt þóf. Þó þannig að bankamenn urðu að greiða gjald þetta fyrst í stað. Raddir komu fram um það að Eftirlaunasjóður- inn sjálfur greiddi gjöld þessi fyrir félags- menn, þar eð sjóðsstjórnin hefði vanrækt að standa á verði um hagsmuni sjóðsfélaga. Þá óttuðust margir að lífeyrissjóður hinna ýmsu starfsmanna hópa væru látnir renna í Lífeyrissjóð íslands og voru félagar kvattir til að vinna að alefli gegn þeim fyrirætlun- um, Þá kom frá stjórn félagsins uppástunga um, að sett væri — með leyfi bankastjórn- arinnar upp vog, sem komið væri fyrir í Þorgils Ingvarsson fyrsti formaður námssjóðsstjórnar F.S.L.I. afgreiðslusal bankans gegn 25 aura gjaldi — sem rynni í sjóð til eflingar félagsstarfinu. ÁRIÐ 1937: Á aðalfundi félagsins segir í árskýrslu stjórnarinnar, að starfsmenn Útvegsbankans hafi hafnað þeirri tillögu Sambands ísl. bankamanna að reisa sam- eiginlegt „Bankasel" til afnota fyrir sam- bandsfélaga og sé því málið sem slíkt úr sögunni. í sambandi við ávöxtun Eftirlaunasjóðs stakk Haraldur Jóhannessen upp á því, hvort ekki væri til athugunar fyrir sjóð- inn að lána félagsmönnum í byggingar- sjóð til íbúðarbygginga, með veði í íbúð- unum. Taldi eðlilegt að starfsmenn fengju á þann hátt að njóta sjóðsins og voru fund- armenn sammála um það. ÁRIÐ 1938: Sumarskálamálið enn á dag- skrá og allmikið rætt, og nefnd kosin í málið. Erindi flutt af Helga Sigurðssyni BANKABLAÐIÐ 7

x

Bankablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.