Bankablaðið - 01.04.1953, Page 21

Bankablaðið - 01.04.1953, Page 21
KNATTSPYRNULIÐ LANDSBANKANS 1948 arins: Eftirlaunasjóðurinn — framtíð og skipulag sjóðsins, framsögumaður Klemens Tryggvason, fulltrúi félagsins í stjórn sjóðsins. Rakti hann í fyrstu sögu sjóðs- ins í stórum dráttum og skýrði frá nauð- synlegum breytingum, sem hefir orðið að gera m. a. í sambandi við lögin um Al- mannatryggingar. Taldi hann, að bráðlega mundi koma að því, að taka þyrfti til alvarlegrar athugunar framtíðarskipulag hans og gera breytingar frá því, sem nú er. Minnti hann á, að til þessa hefði sjóður- inn ekki þurft að greiða nema grunnupp- hæð af eftirlaunum, en bankinn hefði greitt verðlagsuppbótina. Nú er óvíst, hvort hann heldur því áfram, hann er ekki skyld- ugur til þess, og getur hætt því hve nær sem er. Færi svo, getur sjóðurinn ekki stað- ið við skuldbindingar sínar og yrði annað hvort að hækka tillög sjóðfélaga til lians eða skerða hlunnindin. Til mála gæti kom- ið að hækka tillögin úr 5% af grunnlaun- um í 4% af öllunt útborguðum launum, en það greiða starfsmenn ríkisins í lífeyrissjóð. Bankinn er nú þegar búinn að leggja í sjóðinn, 1,2 millj. krónur og ekkert er hasgt að segja um, hvort hann bætir þar við. Að lokum benti Klemens á það, að á næstunni mætti gera ráð fyrir, að nauðsyn bæri til að athuga öll mál sjóðsins og gera ráðstafanir hans vegna fyrir framtíðina eft- ir því sem breyttar aðstæður gæfu tilefni til. Umræður urðu miklar um málið og var kosin nefnd til að athuga og fylgjast með málinu. í nefndina voru kjörnir: Jón Gríms- son, Bjarni Magnússon og Sigurbjörn Sig- BANKABLAÐIÐ 11

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.