Bankablaðið - 01.04.1953, Blaðsíða 30

Bankablaðið - 01.04.1953, Blaðsíða 30
Eftir að hinn nýi bankastjóri tók við störfum fór formaður Starfsmannafélagsins á fund hans og óskaði góðrar samvinnu við hann um málefni bankans og starfsmanna svo sem verið hefir ávalt innan stofnunar- innar. Er það trúa vor að svo verði og hyggjum vér á gott samstarf. Tveim dögum áður en núverandi forseti íslands tók við embætti hélt starfsfólk Út- vegsbankans honum kveðjusamsæti í hátíða- sal bankans. Var þar fjölmenni mikið og margar ræður fluttar. Var Ásgeir Asgeirsson kvaddur með virðingarorðum og vinar- kveðjum og honum og konu hans færðar árnaðar- og liamingjuóskir. Kveðjuhóf þetta endurguldu forseta- hjónin með því að bjóða bankastjórn og félagsmönnum starfsmannafélagsins að Bessastöðum þann 1. nóv. síðastliðinn. Nutu félagsmenn þar mjög ánægjulegrar gleðifundar og mikillar gestrisni. Færðu þeir forsetanum skrautritað ávarp undirrit- uðu af starfsmönnum bankans með árnaðar- óskum og þakkarorðum, en formaður starfs- mannafélagsins flutti ræðu og forsetinn Jjakkaði. Á jnettandanum háði lið úr starfsmanna- félagi IJtvegsbankans keppni við lið úr Landsbankanum í spurningaþætti Ríkisút- varpsins og lauk Jseirri viðureign með sigri Útvegsbankans. Formaður kjörstjórnar, Guðjón Halldórs- son, lýsti úrslitum stjórnarkosninga og höfðu atkvæði fallið þannig: Adolf Björnsson hlaut 74 atkvæði. Guðmundur Einarsson hlaut 39 atkvæði. Guðjón Halldórsson hlaut 34 atkvæði. Sig. Guttormsson hlaut 33 atkvæði. Birna Björnsdóttir hlaut 31 atkvæði. Var Adolf Björnsson kosinn formaður, en að öðru leyti skiptir stjórnin sjálf með sér verkum. STARFSMANNA LANDSBANKANS Að undanförnu hefir mikið verið um Jaað rætt meðal starfsfólks Landsbankans, hvort ekki væri tímabært að setja á stofn mötuneyti í bankanum og starfsfólkið hætti að fara heirn til hádegismatar. Nokkuð hafa verið skiptar skoðanir um málið og ekki eru líkur til að það fyrirkomu- lag komist á í næstu framtíð. Hinsvegar hafa jreir sem lengst hafa átt að, haft þann hátt á að hafa með sér matarpakka og bankinn hefir skapað aðstöðu í kaffistofunni til, að þeir sem jaað vildu, fengu kaffi, te og mjólk og stutt að öðru leiti þá, sem vildu njóta hádegismatar og hvíldar hér í bank- anum. Reynslan sem fengist hefir í þessu máli, hefir orðið til þess að áhugi fyrir mötu- neyti hefir farið vaxandi. Nokkrir starfsmenn sendu stjórn Starfs- mannafélagsins skriflega áskorun um að taka jjetta mál til meðferðar, og eftir nokkra athugun var málið lagt fyrir fund í Starfs- mannafélaginu og fyrir stjórn bankans, sem tók málinu mjög vel. Að fengnu samþykki bankastjórnarinnar var samþykkt að setja mötuneytið á stofn og tók jtað til starfa 15. apr. s.l. Munu milli 20—30 starfsmenn vera Jtar í föstu fæði. Tvær starfsstúlkur vinna í eldhúsinu, en Anton Halldórsson sér um dagleg innkaup og rekstur þess. Er hér um að ræða hagræði fyrir þá, sem hafa jjurft að kaupa hádegismat á matsölu- húsum, svo og hina sem hafa verið með „skrínukost“ í hádeginu. Þetta fyrirkomu- lag sem nú er, hefur gefið góða raun og jjakkir beir jjeim sem komið hafa mötu- neytinu í framkvæmd. X. 20 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.