Bankablaðið - 01.04.1953, Page 31

Bankablaðið - 01.04.1953, Page 31
Tuttugu 09 fimm «r« nfmmlisbóf f.$.L.Í. Félag starfsmanna Landsbanka íslands átti 25 ára afmæli 7. mars síðastliðinn og var afmælisins minnst með hátíðasamkomu í samkomusal félagsins í Landsbankanum. Var salurinn fagurlega skreyttur. Samkoman hófst með borðhaldi kl. 8,30 urn kvöldið. Tóku þátt í því yfir 80 manns, starfsmenn bankans og gestir þeirra svo og gestir félagsins, sem voru bankastjórar Landsbankans ásamt konurn þeirra og for- menn bræðrafélaganna, Starfsmannafélags Búnaðarbanka íslands og Starfsmanna- félags Útvegsbanka íslands, h. f. en formað- ur hins síðarnefnda er jafnframt formaður Sambands íslenzkra bankamanna. Formaður skýrði í ræðu sinni frá stofnun félagsins fyrir 25 árum, 7. marz 1928. Hann minntist sérstaklega stofnendanna og las nöfn þeirra. Stofnendurnir voru 27 talsins, en í lok ársins 1928 voru félagar orðnir 41. Fyrstu stjóm félagsins skipuðu Jieir Hilm- ar Stefánsson ,núverandi bankastjóri, Bryn- jólfur Þorsteinsson, bankafulltrúi, sem nú er látinn, og Haraldur Jóhannessen, banka- fulltrúi. Er hann sá eini úr fyrstu stjórn félagsins, sem enn starfar í Landsbankan- um. Af stofnendunum 27 eru aðeins 7 enn starfandi hjá bankanum, 6 í aðalbankanum og, á Akureyri. Á liðnum 25 árum hafa 11 af stofnendunum látist. Las formaður nöfn þeirra, en allir viðstaddir heiðruðu minn- ingu þeirra með því að rísa úr sætum. 9 af stofnendum félagsins hafa hætt störfum hjá Landsbankanum. Af þeim eru 4 starfandi hjá öðrum bönkum, þar á meðal 2 banka- stjórar. í félaginu, sem eins og áður segir var stofnað af 27 starfsmönnum Landsbankans, eru nú 125 félagar, en á undangengnum 25 árum hafa margir komið og farið. Formaður varpaði því næst fram spurn- ingunni: Hvað er þá orðið okkar starf? Hann rakti það síðan nokkuð og taldi að vafalaust hefði því verið í mörgu áfátt. Á liðnum aldarfjórðungi hefði margt skeð og margt breytst. Starfið hefði mótast af þeirri aðstöðu, sem við var að búa á hverj- um tíma, eins og starf annara félaga. Félag- ið hefði unnið að hagsmunamálum félags- manna og einnig nokkuð að menningarmál- um, auk Jjcss að sjá félagsfólki fyrir skemmt- unum. Félagið hefði haft mikla og vaxandi sam- vinnu við stjórn bankans og afskipti þess af kjaramálum starfsfólksins hefðu á ýms- um tímum borið mikinn ávöxt til heilla fyrir félagsmenn og mætti nefna þess mörg dæmi. Aðstaðan til félagsstarfsemi væri nú ólík því, sem var í upphafi, og sæist þess Ijósast merki þegar litið væri á húsnæði það, sem félagið hefði nú til sinna þarfa. Þakkaði formaður síðan stjórn bankans fyrir samvinnu og góðan skilning á mál- efnum starfsfólksins. Að lokum beindi hann því til félags- manna, að þeir gætu best minnst þessa BANKABLAÐIÐ 21

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.