Bankablaðið - 01.06.1953, Qupperneq 9

Bankablaðið - 01.06.1953, Qupperneq 9
I I I AÐ LIÐNUM TVEIMUR ÁRATUGUM Starfsmannafélag Útvegsbankans er tuttugu ára. Á þeim sögulegu tímamót- um verður mörgum, einkum hinum eldri starfsmönnum bankans, hugsað til stofn- unar félagsins og starfsáranna frá upphafi til þessa dags. Árið 1933 hafði íslands- banki starfað í 26 ár og Útvegsbanki íslands h. f. í 3 ár. Á þeim árafjölda hafði unnið hjá þeim stofnunum fjölmennur hópur kvenna og karla. Án efa hefur samstarf og félagsandi ríkt meðal þessa fólks. Þó varð það eigi fyrr en 1. júní 1933, að starfsmenn Útvegsbankans stofnuðu félag til þess að vinna að hagsmunamálum sínum og öðrum sameiginlegum hugðarefnum. Starfsmannafélag Útvegsbankans mótaði í upphafi ákveðna stefnu og hafði á að skipa öruggri forustu. Vannst vel að því, að fá viðurkenningu á tilveru og rétti félagsins til umræðna og tillagna í launamálum. Enn fremur var eitt af fvrstu baráttumálum félagsins og stór sigur í starfssögu þess að fá koniið á stofn Eftir- launasjóði fyrir starfsmenn bankans. Hefur liagur hans og efling verið einn merk- asti og mikilvægasti þáttur í starfsemi félagsins. Margt fleira mætti nefna, og verður það rakið í sögu félagsins. Verkefnin hafa verið ótæmandi og margir og fórnfúsir félagar hafa lagt hönd á plóginn og góðan hug til þess að efla gengi félagsins og hag fólksins. Fyrir það allt er skylt að þakka á þessum tímamótum. Margir eiga þær þakkir frá núverandi starfsmönnum fyrir margvíslegar fyrirgreiðslur í félagsmálum. Einnig er það gleðiefni að mega þakka ánægjulegt samstarf og samskipti við stjómendur bankans. En gagnkvæmur skilningur þessara aðila, er hinn traustasti grundvöllur bankastarfseminnar. Samstarf við Samband ísl. bankamanna og önnur félög bankastarfsmanna j hefur verið félagi okkar til eflingar og ánægju. Framtíðin skapar ótæmandi verkefni fyrir núverandi og nýja starfsfélaga. Ég j vona að þeir geri sér far um að halda ávalt merki félagsins hátt á lofti. Verið þess j minnug að margar hendur vinna létt verk og góður hugur og samheldni getur j gert framtíð félagsins glæsilega fyrir okkur sjálf og stofnun þá, er við unnum öll | af heilum hug og hollustu. ! Adolf B/örnsson. | í 7 - - -----—----------———-------------------------------------------+ BANKABLAÐIÐ 3

x

Bankablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.