Bankablaðið - 01.06.1953, Qupperneq 16

Bankablaðið - 01.06.1953, Qupperneq 16
Þormóður Ögmundsson að kvikmynda. STARFSMANNATAL. Árið 1938 er sá háttur upp tekinn, að skrá alla starfsmenn við bankann og reyndar allt frá stofnun íslandsbanka. Er þarna að finna ýmsan fróðleik um hvern einstakan. Fvrir nokkrum árum voru gerðar umbætur á fyrir- komulagi starfsmannatalsins og gert ráð fyrir að myndir verði til af öllurn þeim, sem getið er í skránni. í þessu sambandi hefur Starfs- mannafélagið gengizt fyrir myndatöku af starfsmönnum í Reykjavík, og jafnframt gert ráðstafanir til þess, að svo verði einnig gert í útibúum bankans, þar sem því verður við komið. Bjami heitinn Jónsson frá Unnar- holti átti frumkvæði að starfsmannatalinu og skráði það. Gengdi hann því starfi til dánardægurs. Eftir hann, hefur Guðmundur E. Einarsson annazt þennan starfa. SKEMMTIFERÐIR. Starfsmannafélagið gekkst fyrir skemmti- ferðum á hverju vori, svo sem tíðkazt hafði rneðal starfsmanna íslandsbanka um margra ára skeið. Árið 1935 verður sú breyting á, að bankinn greiðir ferðakostnað starfsmann- anna og nokkrum árum síðar greiðir bank- inn allan kostnað við skemmtiferðimar og hefur svo verið síðan. Eiga rnenn rnargar og ánægjulegar endurminningar frá þessum ferð- um. Mörg hin síðari ár hefur Þormóður Ögmundsson tekið kvikmyndir í ferðum þessum, sem sýndar hafa svo verið á skemmt- unum félagsins og hlotið hinar mestu vin- sældir. SKEMMTANIR. Félagið hefur frá fyrstu tíð gengizt fyrir skemmtunum meðal starfsfólksins. Hin síð- ari ár hefur verið haldinn nýársfagnaður ár hvert. Þá hafa og verið haldnar jólatrés- skemmtanir fyrir böm starfsmanna. Bankinn hefur greitt kostnaðinn við þær, en starfs- fólkið hefur annazt allan undirbúning og framreiðslu. Starfsfólk úiibúsins á ísafirði. Talið frá vinstri: Bjarni Guðbjörnsson, útibus- stjóri, Högni Þórðarson, Elisabet Kristjánsdóttir, Sverrir Guðmundsson. A myndina vantar Önnu Mariu Valsdóttur 10 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.