Bankablaðið - 01.06.1953, Síða 19
Starfsfólk Útvegsbankans.
í starfi fclagsins á umliðnum árum en þó
verður ekki hjá því kornist að nrinnast eins
manns úr þeim hópi, þar sem hann hefur
lengst allra komið hér við sögu. Það er
núverandi formaður félagsins Adolf Björns-
son. Hann hefur átt drjúgan þátt í forsjá
félagsins og verið formaður þess um langt
skeið. Störf sín hefur hann unnið með ár-
vekni og fádæma ósérhlífni, enda hefur veg-
ur félagsins vaxið í höndum hans.
Allt frá stofnun félagsins, hefur þurft
mikið undir bankastjórana að sækja, en
þeir hafa tekið málefnum félagsins með vin-
semd og litið á starf þess með velvilja. Félagið
minnist því þess með þakklæti. Engum
virðist þó gert rangt til, þó að félagið þakki
einum þeirra, Helga Guðmundssyni, sérstak-
lega á þessum tímamótum í sögu þess, þar
sem hann hefur verið aðalbankastjóri allan
þann tíma, sem félagið hefur starfað. Helgi
Guðmundsson hefur sýnt félaginu hina
fyllstu tillitssemi og gert sér far um að koma
til móts við starfsfólkið og hugðarmál þess
af góðum skilningi. Þess eru og mörg dærni,
að han'n hefur orðið fyrri til um ýmislegt,
sem því hefur orðið til hags og ánægju.
Að lokum vil ég svo áma Starfsmanna-
félagi Útvegsbankans allra heilla í nútíð og
framtíð.
G. H.
BANKABLAÐIÐ 13