Bankablaðið - 01.06.1953, Blaðsíða 21

Bankablaðið - 01.06.1953, Blaðsíða 21
AFMÆLISDAGAR ÞorsteinMi Arnórsson bankavörður í Útvegsbanka íslands h. f. varð sextugur 20. febrúar síðastliðinn. Hann fæddist að Folafæti í Súðavíkur- hreppi 1893. Stundaði hann í uppvexti margs- konar störf til sveita og sjávar. Lengst af munu þó störf Þorsteins hafa verið á hafinu. Hneygðist hugur lrans þangað á unga aldri. Hann lauk skipstjóraprófi á ísafirði 1923. Var hann lengi formaður í Bolungavík og víðar og ávalt fengsæll og happasæll í sjó- róðrum. Um skeið var Þorsteinn skipstjóri á Djúp-bátnum og fór fjöldamargar ferðir um ísafjarðardjúp. Var annáluð stjórnsemi og lipurð hans í þeim störfum. Árið 1935 fluttist Þorsteinn til Reykjavík- ur og hefur verið starfsmaður Fiskveiðasjóðs íslands og Útvegsbankans síðan 1938. Nýtur liann í þeim störfum vinsælda yfir- boðara og samverkamanna. Er hann rnaður fastur fyrir, friðsamur og fyrirgreiðslufús. A. B. /íjálmfýr Sigurðsson bankavörður varð 75 ára 14. apríl síðast- liðinn. Hann fæddist á Stokkseyri 1878. Um langa og merka ævi hefur Hjálmtýr komið víða við sögu viðskipta og félagsmála. Verður sú saga eigi rakin hér að þessu sinni, en margir munu þeir vera, sem kynnzt hafa honum í sambandi við þau störf hans og eiga góðar endurminningar um þau samskipti. Síðan 1940 hefur Hjálmtýr starfað í Út- vegsbankanum og tekið þar á móti hinum tignustu gestum. Kann hann vel til þeirra starfa. Hann er í hópi hinna velgerðu og glað- lyndu starfsmanna, og sér eigi á,þó að árin séu mörg og störfin margþætt eins og raun ber vitni og kirkjubækur sanna. Hann er öldungur með unglings yfirbragð, síkátur og skemmtinn í viðræðum og vinahópi. Starfsfélagar Hjálmtýs árna honum og hans ágætu konu heilla og framtíðarhamingju. A. B. BAN KABLAÐ IÐ 15

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.