Bankablaðið - 01.12.1953, Blaðsíða 35

Bankablaðið - 01.12.1953, Blaðsíða 35
eins og vísdómsfullt lík, þar sem hún lá, og mér fundust orð hennar örlögin sjálf. „En hvernig getur maður þá þekkt þetta augnablik frá öllum hinum?“ hvíslaði ég hikandi og eftirvæntingarfullur. „Þess þarf ekki,“ svaraði hún og lyfti vofubleikri hendinni. „Verðu öllum augna- blikum ævi þinnar skynsamlega, og þá hlotnast þér það, sem þú þráir, því þetta eina, pnð kemur.“ Fleira sagði hún ekki. Ég stóð á fætur og vogaði mér ekki að spyrja meira. Ganila konan í rúminu líkt- ist múmíu. Nú lá hún hreyfingarlaus. Ég hvíslaði fram kveðju og læddist á burt. Hugsun mín snérist um dýrmæta augna- blikið, sem kannske var liðið hjá. — Stig- arnir brökuðu hátt undir fótum mínum. Það var þeirra rödd. Og ömurlegt marrið hljómaði mér ásakandi í eyrum. Þuríður mætti mér í ganginum og sagði, að stúlka hefði komið og spurt eftir mér, og síðan farið aftur. Svona væri að vera ekki heima! „Það hefur verið 01ga,“ hugsaði ég. Svo gekk ég inn í herbergið mitt og fór að reykja. Ég reykti pípu eftir pípu og sósan í botni hennar snarkaði eins og feiti yfir eldi. Það var hægt að lesa myndir út úr bláum reyknum. Seinna um kvöldið kom Olga aftur. „Gakk inn í fögnuð herra þíns," sagði ég við hana unt leið og hún steig inn fyrir þröskuldinn, og átti að vera til gamans, en hún liló ekki, bara brosti dauft og leit í kringum sig. „Má ég fara úr kápunni minni, það er svo heitt hérna??“ bað hún, og fór með mínu leyfi úr rauðu kápunni sinni með loðkraganum. Innan undir var hún í ódýr- um kjól, næstum ermalausum. Svo settist lnin á körfustólinn, en ég lagðist endilangur á dívaninn. — Ég fór að horfa á hana þreytt- um, bjarmalausum augum, án þess að hugsa nokkuð sérstakt. Hún leit til mín stundum, og í hverju tilliti fólst hjálparleysi og bæn. Það var bæn um hlífð, því ég væri svo sterkur og einvaldur. Svo fór hún að tala unt, lrvað það væri einkennilegt, að við skyldum kynnast og að við skyldum sitja hér saman, ég að austan, hún að vestan, og hvers vegna þetta skyldi nú hafa viljað svona til. „Það eru forlög. Það hefur átt að fara svona,“ sagði ég, samvizkulaus, með blíðri rödd og sá, livað lnin gladdist í leyni af þessum orðum mínum. Hún varð djarfari á svipinn og tók snyrtitæki upp úr töskunni sinni. Ég hélt áfram að horfa á hana meðan hún speglaði sig og lagfærði, og ég uppgötv- aði, að hún átti ekki nóg handa sálinni, en þess í stað eitthvað, sem fingurnir vildu snerta. — Litlu seinna bað hún mig að lofa sér að heyra eitthvert kvæði eftir mig. Ég fór nteð eitt. Það var ástarkvæði um ljós- hærða stúlku. Henni féll Jaað ekki, }:>að var auðséð á svip hennar, og hún spurði mig, um hvaða stelpu ég hefði nú ort Jtetta, og hvort ég væri ekki voðalega oft með stelp- um. — Þá fór ég að útskýra ívrir henni, að Jrað væri alls ekki ort um neina sérstaka. Það gæti eins verið um hana og hverja aðra. Og hvort ég væri með stelpum, — nei, öðru nær, ég væri að skrifa. Þetta sagði ég henni og sýndi henni til sannindamerkis blýantinn minn, — hann var varla oiðinn meira en tvær tommur að lengd. Við sátum Jtegjandi nokkra stund. Hún fitlaði við töskuna sína, ég lá kyrr. „Viltu setjast hjá mér?“ spurði ég að lok- um. Það var eins og hún efaðist. „En ég er bara að flýta mér svo mikið," svaraði hún og flutti sig yfir á dívaninn. „Ég má ekki vera að því að standa lengi við núna, en — seinna“. BANKABLAÐIÐ 25

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.