Bankablaðið - 01.07.1985, Blaðsíða 33
GUNNLAUGUR G. BJÖRNSON
33
Gunnlaugur G. Björnson starfar nú
hjá Reiknistofu bankanna. Hann hef-
ur á langri starfsævi unnið ýmiss kon-
ar bankastörf. Fyrst í Landsbankan-
um fyrir réttum 50 árum síðan. Gunn-
iaugur hefur því kynnst ólíkum starfs-
aðferðum bankanna, og gerir sér
vafalaust betur en margir aðrir grein
fyrir þeim hættum sem kunna að
fyigja því að skipta frá einu kerfínu til
annars.
TÖtVAN
MÁEKKI
IAKA VÖLDM
„Stærsta breytingin sem orðið hefur í
bankastarfseminni síðan ég byrjaði að
vinna í banka er einmitt tilkoma tölvunn-
ar. Það sem framundan er, og verður til
mikilla bóta, er beinlínuvinnslan. Hér
áður fyrr var allt fært og bókað í bankan-
um sjálfum, þannig að allar upplýsingar-
lágu þar fyrir. Núna er þetta sent í tölv-
una í Reiknistofunni og bókað þar; þú
færð síðan lista í bankann á hverjum
ntorgni yfir það sem gerðist daginn áður.
En þegar þú ert kominn í beint samband
við tölvuna, þá getur þú spurt hana beint
úr bankanum: hvemig stendur þessi
reikningur.
Við getum tekið dæmi um hvað þetta
þýðir. Týni einhver viðskiptamaður tékk-
heftinu sínu, þá getur hver einasti af-
greiðslumaður bankans séð um leið og
tapið er tilkynnt hvað gerst hefur. Hið
sama má segja um þegar afturkalla þarf
ávísun; afturköllun ávísana er eiginlega
ekki virk í dag. Og það hefur ekki sísta
þýðingu fyrir bankana sjálfa að um leið
og einhver brýtur af sér í bankakerfinu,
þá geti upplýsingar um það borist í einu
vetfangi út um allt kerfið".
- Nú mun afgreiðslan í bönkunum
breytast nokkuð við beinlínukerfið;
hverju þarf starfsfólk bankanna að
þínum dómi að gefa gætur að við þess-
ar nýju aðstæður?
„Fólkið í bankanum þarf að vera dóm-
bært á það sem tölvan skilar frá sér. Ég
vil að bankarnir, í gegnum Bankamanna-
skólann, kenni starfsfólkinu sérstaklega
það sem tölvan lætur frá sér fara.
Það má alls ekki vera þannig, að þegar
viðskiptamaður kemur inn í bankann og
spyr af hverju ákveðin greiðsla sé
þannig, þá verði svarað:“ Ég veit það
ekki, en tölvan segir að þetta eigi að vera
svona“. Þetta kalla ég að tölvan verði
búin að taka völdin. En ef maðurinn er
hins vegar fær um að eftirreikna það sem
tölvan gerir og sendir frá sér, þá hefur
hún ekki fengið völdin“.
Gunnlaugur G. Björnson, Reiknistofu bankanna.
- Þýðir þetta e.t.v. að þú berir tak-
markað traust til þessara sjálfvirku
véla?
„Nei, en það geta verið settar vitlausar
upplýsingar í tölvuna. Við verðum að
hafa í huga að tölvan gerir ekki annað en
það sem þú segir henni að gera; það er
svo ekki nauðsynlega einmitt það sem þú
meintir. Mistök geta alltaf átt sér stað.
Og þegar það gerist má ástandið ekki
vera þannig að enginn í stofnuninni
greini mistökin, eða kunni að endur-
reikna það sem tölvan sýnir. Þá værum
við orðin eins og í grínmynd sent ég sá
einhvern tíma, þar sem forstjórinn gekk
um fyrirtækið og spurði hvort nokkur
kynni lengur að leggja saman, því sam-
lagningarvélin væri biluð.
Það þarf svo örugglega að veita því
fólki sem semur prógrömmin hjá Reikni-
stofunni aðstöðu hjá bönkunum, þannig
að eðlileg samvinna geti orðið þarna á
milli“.