Bankablaðið - 01.12.1985, Qupperneq 32
32
Frá starfsmannafélögunum
Félagslíf Starfsmannafélags
Samvinnubanka íslands tekið út
Árið 1985 byrjaði samkvæmt venju
með hinu árlega jólaballi, og var það
fjölsótt að vanda. Skrítnu karlarnir í
rauðu fötunum og með hvíta skeggið
vöktu að sjálfsögðu ómælda ánægju
hjá yngstu kynslóðinni, því alltaf má
búast við einhverjum glaðningi þegar
þeir eru á ferð.
í febrúar var haldinn aðalfundur
starfsmannafélagsins og þar var
Gunnhild 0yahals kosin formaður fé-
lagsins og Guðfinna Árnadóttir og
Þröstur Friðfinnsson kosnir með-
stjórnendur en til vara þeir Aðalsteinn
Örnólfsson og Björn Jóhannsson.
í mars var haldið þorrablót og þar
gæddu menn sér á allskonar góðgæti
svo sem eistnavefjunum vinsælu, súra
hvalnum sem senn fer að teljast eins og
hvert annað raritet, hangikjötinu vin-
sæla og mörgu, mörgu fleira. Þessu
öllu skoluðu menn niður með þjóðar-
drykk íslendinga en hann er ekki hægt
að nefna á nafn á prenti því það gæti
farið fyrir brjóstið á sumum.
Um vorið var farið að sjá „Litlu
Söngst jórarnir Hildur og Ágústa.
hryllingsbúðina” og herma fregnir að
til þeirra sem hana sáu hafi sést á
dimmum nóttum læðast út með stofu-
blómin í hendi sér og lauma þeim í
öskutunnuna.
í júní var farið í hið næstum því
árlega bankaferðalag. Var mikill
hugur í mönnum og stefnan sett á
Mývatn. Því miður var þátttakan léleg
af suðvesturhorninu er á reyndi, en
þeir sem þó létu hafa sig að fara, komu
alsælir til baka því þar höfðu þeir m.a.
kynnst mörgum góðum austfirðingum
og svo hinu stórbrotna landslagi Mý-
vatnssvæðisins. Fyrirhugað hafði ver-
ið að vígja hið nýja orlofshús bankans,
sem staðsett er skammt frá Aðaldals-
flugvelli en þar sem húsið var ekki sett
á grunninn fyrr en á sunnudagsmorg-
uninn urðu menn að láta sér nægja að
virða það fyrir sér úr lofti.
Um sumarið var farið í þrennar vel
heppnaðar kvöldgöngur undir ske-
leggri stjórn Pálma Gíslasonar á Suð-
urlandsbrautinni.
Frekar rólegt var yfir félagslífinu
yfir haustmánuðina, en þó ber þess að
geta, að haldin var síðsumarshátíð þar
sem sumarstarfsfólkið var kvatt á
viðeigandi hátt.
Á 23ja ára afmælisdegi Starfs-
mannafélagsins hinn 9. nóv. sl. var
haldin árshátíð. Metaðsókn að venju
260 manns. Árshátíðin var haldin á nýj-
um stað Hótel Borg, þar sem sá staður
hvar við höfum haldið árshátíðina sl. 9
ár var orðinn of lítill. Slík aðsókn var í
ár að útlit er fyrir að leita verði að
stærri stað fyrir næstu árshátíð.
Skemmti fólk sér við glaum og gleði
fram eftir nóttu og er vafamál að allir
hafi verið búnir að jafna sig fullkom-
lega þegar grámyglulegur hversdags-
leiki mánudagsins barði að dyrum.
Fjórar hressar: Lára — Kata — Hulda M. og Hulda Þ.
Á þessari mynd sést vel, hvað Jörundur og co. voru skemmtilegir.